Athafnamaður á sextugsaldri er laus úr gæsluvarðhaldi sem hann var hnepptur í á mánudag. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna farbann.
Maðurinn var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á sunnudag við komuna frá Lissabon í Portúgal. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald næsta dag.
Maðurinn var handtekinn vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklu peningaþvættis- og fíkniefnamáli. 17 voru handteknir 22. september og sex úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Þeim hefur verið sleppt úr haldi.