Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck hefur nú loks svarað spurningunni á allra vörum um nektarsenu í kvikmyndinni Gone Girl. Þar mátti sjá persónuna sem Affleck lék kviknakta í sturtunni. Veltu margir fyrir sér hvort þar hefði mátt sjá kynfæri leikarans eða gervilim.„Ég var ekki með gervilim,“ sagði leikarinn í samtali við Variety. „Ég hef bara verið með gervilim í einni mynd, Hollywoodland, og þá var það nef.“
Svarar loksins spurningunni á allra vörum um nektarsenuna í Gone Girl