Dótturinni hafði verið vísað til meðferðar á sjúkrahúsinu og Sjúkratryggingar greitt fyrir hana. Faðirinn taldi eftirliti íslenskra yfirvalda með meðferðinni hafa verið ábótavant og að aðstandendur hefðu ekki fengið nægar upplýsingar um áhættu og önnur úrræði.
Í bréfi umboðsmanns sem birt er í dag kemur ekki fram hvað olli andláti dótturinnar eða hvaða meðferð hún fékk.
Faðirinn þurfti sjálfur að fylgja málinu eftir
Sjúkratryggingar höfðu haft samband við sjúkrahúsið, aflað upplýsinga um tilkynningu málsins til erlends eftirlitsaðila og sent föðurnum þær.
Heilbrigðisráðuneytið taldi stofnunina hafa veitt þá aðstoð sem henni bar. Þótt Sjúkratryggingar hefðu greitt fyrir meðferðina bæri föðurnum sjálfum að koma kvörtun til erlendra eftirlitsstjórnvalda og fylgja henni eftir.
Umboðsmaður gerði ekki athugasemd við þá niðurstöðu og lauk kvörtunarmálinu 30. september. Hann tók ekki afstöðu til mögulegrar bótaábyrgðar íslenska ríkisins, heldur taldi eðlilegra að dómstólar leystu úr því.
Vill vita hvaða leiðbeiningar aðstandendur fá
Kvörtun föðurins varð þó tilefni til þess að umboðsmaður skrifaði heilbrigðisráðherra og spurði hvernig upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandenda væri háttað þegar íslenskar heilbrigðisstofnanir senda fólk í meðferð erlendis.
Hann vill meðal annars vita hvaða leiðbeiningar fólkið fær um réttindi sín. Ráðuneytið hefur frest til 16. október til að svara. Þá ákveður umboðsmaður hvort hann taki upplýsingagjöfina til frekari athugunar.