Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn var síðastliðinn mánudag úrskurðaður í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar málsins en það rann út í dag.
Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Portúgal. Lögreglan ætlaði að handtaka hann í umfangsmiklum aðgerðum 22. september en hann var þá staddur erlendis. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann verið ytra í einhvern tíma en hann er með skráð símanúmer í Portúgal.
Alls voru sautján manns handteknir vegna málsins 22. september. Sex þeirra sátu í gæsluvarðhaldi. Öllum sautján hefur síðan verið sleppt úr haldi vegna málsins og síðustu tveir voru látnir lausir fyrir sléttri viku.