Í þremur samhljóða dómum Landsréttar, sem kveðni voru upp í gær, segir að atvik málsins hafi orðið aðfaranótt mánudags í ágúst árið 2021, þegar árekstur varð í Mosfellsbæ með létta bifhjólinu og bifreið sem tryggð hafi verið lögboðinni ökutækjatryggingu hjá VÍS.
Ökumaður bifreiðarinnar hafi verið sautján ára, réttindalaus og hafi ekið af vettvangi en snúið aftur skömmu síðar og þá verið handtekinn.
Létt bifhjól í flokki I eða II?
Aðilar málsins hafi deilt um það hvort bifhjólið hefði talist til léttra bifhjóla í flokki I og þar með hvorki verið skráningar- né vátryggingarskylt eða í flokki II, og slík skylda þá fyrir hendi.
Í skýrslu um rannsókn á bifhjólinu hafi komið fram að með kveikt á rofa, sem komið hefði verið á hjólinu, næði það 25,6 kílómetra hraða á klukkustund en væri slökkt á honum næði það hraðanum 57,6 kílómetrum á klukkustund.
Þrátt fyrir það komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að bifhjólið teldist enn í flokki I í skilningi þágildandi umferðarlaga, með vísan til rökstuðnings héraðsdóms þess efnis að það væri ekki „hannað“ til hraðari aksturs en hefðbundið létt bifhjól í flokki I, í skilningi umferðarlaganna þágildandi. Í núgildandi umferðarlögum hefur ákvæði verið bætt við sem leggur bann við breytingum sem hækka hámarkshraða léttra bifhjóla í flokki I.
Létt bifhjól eru skilgreind sem vélknúin ökutæki á tveimur, þremur eða fjórum hjólum sem eru ekki hönnuð til hraðari aksturs en 45 kílómetra á klukkustund og eru með sprengirými sem er ekki yfir 50 rúmsentimetrum séu þau búin brunahreyfli eða með samfellt hámarksafl sem er ekki yfir 4 kW séu þau búin rafhreyfli. Létt bifhjól greinast síðan í létt bifhjól í flokki I sem eru ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 kílómetra á klukkustund og létt bifhjól í flokki II sem eru hönnuð til hraðari aksturs en 25 kílómetra á klukkustund.
Gáleysi en ekki stórkostlegt
Í dómi Landsréttar segir að aðilar hafi einnig deilt um það hvort tjón unga fólksins konunnar hefði hlotist af notkun bifreiðarinnar og hvort það hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi og hvort fella ætti niður bætur til þess eða lækka af þeirri ástæðu.
Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að þótt það teldist til gáleysislegrar hegðunar af hálfu unga fólksins tveggja að setjast ásamt tveimur öðrum á létt bifhjól án þess að bera hjálm á höfði yrði sú háttsemi ekki virt sem stórkostlegt gáleysi í skilningi laga um ökutækjatryggingar.
Því væri bótaskylda VÍS viðurkennd.