„Yfir hundrað manns bíða nú sárþjáðir eftir því að fá bót meina sinna,“ segir Halldór Skúlason, heila- og taugaskurðlæknir hjá Orkuhúsinu, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.Í grein sinni gagnrýnir hann Sjúkratryggingar Íslands harðlega fyrir að takmarka fjölda skurðaðgerða, meðal annars vegna brjóskloss og hryggjarþrengsla. Hann segir aðgerðakvótann langt undir raunverulegri þörf og að afleiðingarnar séu sífellt lengri biðlistar og auknar þjáningar sjúklinga.
Læknir segir sjúklinga látna kveljast – „Ekki bara tölur heldur raunverulegar manneskjur“