Samkomulag VR við Samtök atvinnulífsins náðist klukkan 15:59 í gær, aðeins mínútu áður en frestur til að segja upp kjarasamningum rann út. Ýmislegt hefur verið haft uppi um atburðarásina fram að því að samningar náðust.
Formaður VR segir útspil ríkisstjórnarinnar og nýtt forsenduákvæði hafa skipt sköpum til að samningar hafi náðst.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, sögðu aftur á móti að ekkert nýtt fælist í samkomulaginu. Deilur VR við SA síðustu daga hafi verið leikrit.
Til að mynda hafi vaxtabótaauki, sem formaður VR segir að hafa gert lokaútslagið, þegar legið fyrir þegar Breiðfylkingin samdi við SA á þriðjudaginn.
Segja hafi fæðst á þriðjudag en útfærð í gær
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir ekki rétt að það sé ekkert nýtt í samningum þeirra. Vaxtabótaaukinn hafi vissulega fyrst verið kynntur á þriðjudegi en VR hafi samið um útfærsluatriði á honum í kjölfarið til að reyna að koma í veg fyrir kjararýrnun.
„Við fengum það í gegn að verðbólguviðmiðið fyrir því að hann [vaxtabótaukinn] virkist var lækkað og fór þá nær því viðmiði sem við höfum viljað miða við, sem er launahækkun næsta árs.“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafði svipaða sögu að segja þegar fréttastofa ræddi við hana að ríkisstjórnarfundi loknum í dag. Hugmyndin hafi fæðst í vikunni, komið fram í pósti og hafi endanlega verið útfærð í þeirri mynd sem hentaði öllum í gær.
Semjum bara á okkar hraða
Halla tekur einnig fram að ekki skipti öllu hvort lokaniðurstaða þeirra hafi verið svipuð Breiðfylkingarinnar eða ekki.
Þó að það væri ekkert nýtt í þessu þá bara semjum við á okkar hraða. Við notuðum hverja einustu mínútu til að reyna að ná betri árangri fyrir okkar félagsfólk en við höfðum í hendi snemma í vikunni og það var bara okkar mat og okkar ákvörðun að nýta tímann eins vel og við gætum.
VR, landssamband íslenskra verslunarmanna (LÍV) og Fagfélögin sömdu um nýtt forsenduákvæði við SA í október á næsta ári
Hvað kemur fram í samningunum?
Nýju forsenduákvæðin sem VR samdi um eru að ef ársverðbólga mælist enn yfir 4,3 prósentum eftir ár eða yfir 3,8 prósentum að meðaltali frá apríl til október má stytta samningstímann um allt að tvo mánuði.
En á þessu er fyrirvari, samningsaðilar þurfa að skoða hvað veldur verðbólgunni og hvort hún sé innflutt. Ef svo er kemur ekki til uppsagnar eða styttingar kjarasamninga, nema um tvo mánuði. Ef ekki næst samkomulag falla samningarnir úr gildi 30. nóvember á næsta ári.