Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni, var byggt árið 1978 og hefur verið endurnýjað mikið á síðustu sex árum. Húsið er 242 fermetrar á þremur pöllum, þar af telur bílskúrinn fimmtíu fermetra.
Andrea og Jón keyptu húsið árið 2024 á 141 milljón eftir að hafa selt einbýlishús sitt að Tjarnarflöt í Garðabænum. Þau hafa endurnýjað húsið töluvert síðan þá og vilja tæpum áttatíu milljónum meira fyrir það en þau greiddu.
Húsið skiptist í miðpall, efsta pall og neðsta pall. Gengið er inn á miðpall í anddyri með fataskápum og gestasnyrtingu. Þaðan er komið inn í forstofu með góðri lofthæð og rennihurð út í garð með timburverönd. Á vinstri hönd er svefnálma með þremur svefnherbergjum, þar af einu hjónaherbergi með fataherbergi, og nýstandsettu baðherbergi.
Úr forstofu er gengið upp nokkrar tröppur á efsta pall þar sem er borðstofa, eldhús og glæsileg arinstofa með útgengt á góðar svalir. Eldhúsið er með stóra innréttingu með steinborðplötum og nýjum tækjum, þar á meðal uppþvottavél og tvöföldum ísskáp.
Á neðsta palli er þvottahús með sturtu sem og bílskúr þar sem helmingurinn er nú tveggja herbergja einstaklingsíbúð. Hinn helmingur bílskúrsins er með innkeyrsluhurð með rafmagnshurðaopnara. Inn af bílskúr er þrjátíu fermetra óskráð rými sem er ekki með fulla lofthæð.
Fyrir utan húsið er stórt upphitað bílaplan sem rúmar auðveldlega þrjá bíla. Gróinn garður er allan hringinn með steyptum kanti við götu. Lóðin er 884 fermetrar og húsið staðsett í grónu og barnvænu hverfi þar sem er stutt í skóla, íþróttasvæði og aðra þjónustu.
Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og hér að neðan eru myndir af húsinu: