Elfa Ýr Gylfadóttir, sem setið hefur sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar frá stofnun hennar árið 2011, tilkynnti í ágúst að hún myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi skipun eftir lok núverandi skipunartíma hennar, sem rennur sitt skeið nú í haust.
Því var starf framkvæmdastjórans auglýst og umsóknarfrestur rann út þann 4. október síðastliðinn. Vísir fór þess á leit við Einar Huga Bjarnason, formann Fjölmiðlanefndar, að fá lista umsækjenda afhentan. Hann er eftirfarandi:
- Birkir Karl Sigurðsson, sérfræðingur í viðskiptaþróun og annar þáttastjórnenda og stjórnarformaður Chess after dark
- Börkur Gunnarsson, verkefnastjóri
- Einar Karl Gunnarsson, viðskiptalögfræðingur
- Hrönn Indriðadóttir, fjölmiðla- og íslenskufræðingur
- Leifur Þorsteinsson, sérfræðingur [og hinn helmingur Chess after dark]
- Matthías Ólafsson, framkvæmdastjóri
- Ólafur Eyjólfsson, sviðsstjóri
- Ólöf Skaftadóttir, ráðgjafi, hlaðvarpsstjórnandi og fyrrverandi fjölmiðlamaður
- Páll Rafnar Þorsteinsson, sérfræðingur
- Salvör S. Jónsdóttir, viðskiptalögfræðingur
- Sigurður Sigurðsson, sérfræðingur
- Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri
- Vera Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri og lögfræðingur
- Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd
- Þórarinn Hjartarson, hlaðvarpsstjórnandi
Hlaðvarpsstjórnendurnir fjórir, Birkir Karl, Leifur, Ólöf og Þórarinn, hafa verið verulega gagnrýnin á störf Fjölmiðlanefndar undanfarin misseri og voru til að mynda meðal fjölda hlaðvarpsstjórnenda sem rituðu grein á Vísi í dag, þar sem þeir mótmæla því að Fjölmiðlanefnd krefji þá um skráningu sem fjölmiðlar.
Á meðal umsækjenda eru einnig Börkur Gunnarsson, fjölmiðlamaður til fjölda ára og fyrrverandi rektor kvikmyndaskóla Íslands, Páll Rafnar Þorsteinsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar.
Að sögn Einars Huga er stefnt að því að ráða í starfið fyrir 1. nóvember næstkomandi.