Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsráðandi stöðu.
Samkvæmt heimildum fréttastofu snýst rannsóknin til að mynda um samninga við veitingastaði, bari eða hótel sem eiga að tryggja að aðeins Ölgerðin fái að selja drykki sína þar. Forsvarsmenn Beru og Ölgerðarinnar segjast ekki kannast við brot á samkeppnislögum.
Slíkir samningar kunna að vera brot á samkeppnislögum ef fyrirtækið er markaðsráðandi á viðkomandi markaði.
Fyrirfram greidd afsláttarkjör og lánveitingar til að tryggja einkarétt
Heimildamenn fréttastofu fullyrða að Ölgerðin hafi í einhverjum tilfellum rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu á vörum Ölgerðarinnar, styrkjum, fyrirframgreiddum afslætti og lánveitingum. Minni framleiðendur geti ekki keppst við slíkt.
Einn viðmælandi fréttastofu sem er í samkeppni við Ölgerðina sagði að í einu tilviki hefði verið búið að setja upp dælur frá honum á veitingastað þegar eigandi staðarins sleit samkomulagi við fyrirtækið. Þetta gerði hann vegna þess að samið var við Ölgerðina sem gerði kröfu um einkasölu á veitingastaðnum.
Sterkar vísbendingar um að Ölgerðin sé markaðsráðandi í sölu á léttvíni og sterku áfengi
Til rannsóknar eru ætluð brot Ölgerðarinnar á 11. grein samkeppnislaga, sem kveður á um að misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja í markaðsráðandi stöðu sé bönnuð.
Þau eiga að hafa verið framin undanfarin sex ár. Samkeppniseftirlitið segir að ganga eigi úr skugga um að Ölgerðin sé í markaðsráðandi stöðu á ákveðnum mörkuðum.
Nýleg rannsókn Samkeppniseftirlitsins, vegna samruna Ölgerðarinnar við Gæðabakstur og Kjarnavörur, leiddi í ljós sterkar vísbendingar um að Ölgerðin væri markaðsráðandi í sölu á léttvíni og sterku áfengi til veitingastaða og annarra stórnotenda.
Samkeppniseftirlitið áréttaði í dag að húsleitin fæli ekki í sér staðfestingu á að brot hafi átt sér stað.
Forsvarsmenn Beru og Ölgerðarinnar vildu ekki veita fjölmiðlum viðtal í dag en segjast í tilkynningu til fjölmiðla ekki kannast við að fyrirtækið hafi misnotað markaðráðandi stöðu sína á drykkjarvörumarkaði.
Þeir segja rannsókn Samkeppniseftirlitsins hafa hafist eftir kvartanir frá keppinautum fyrirtækisins. Stjórnendur hafi ekki neinar upplýsingar um slík brot í starfsemi félagsins.