Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefði sýkst eftir að tilraunaglas brotnaði en búið er að aflétta sóttvarnarráðstöfunum sem gripið var til í Rússlandi
„Þetta var próf og við stóðumst það með hæstu einkunn. Sóttkvínni er aflétt og við mætum til vinnu eins og venjulega,“ tilkynnti Igor Kobzev fylkisstjóri í Irkutsk í morgun.
Hann sagði ítarlegar rannsóknir hafa staðfest að ekkert óhapp hefði orðið á rannsóknarstofunni og konan hefði konan verið bólusett gegn þeim sýklum sem hún vann með.
Var 28 ára og rannsakaði plágur
Fyrst var upplýst um andlátið föstudaginn 2. október en talið að hún hafi látist daginn áður á spítala í borginni Shelekhov. Konan hét Darya Shipilova og var 28 ára. Hún starfaði hjá stofnun sem rannsakar plágur og um 200 voru sett í einangrun.
Dánarorsökin var sögð lungnapest en orsök sýkingar er óljós. Grunur vaknaði um að tilraunaglas hefði brotnað á rannsóknarstofunni og fleiri getgátur eins og þessi sem var borin undir Bandaríkjaforseta á miðvikudag.
„Er plágan í Rússlandi sýklavopn?“ spurði fréttamaður. Trump svaraði: „Það höldum við ekki. Við komumst brátt að því. En við höldum ekki.“
Ekki talin hætta á heimsfaraldri
Sama dag, miðvikudaginn 7. október, sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, þetta:
„Enn vitum við ekki allt um þetta atvik og við höfum ekki getað gert áhættumat. Tímanleg, heildstæð og gangsæ deiling upplýsinga samkvæmt alþjóðlegum reglugerðum er nauðsynleg.“
Það er samt ekki talin hætta á nýjum heimsfaraldri, áhyggjurnar snúa helst að því að Rússland hafi ekki farið eftir alþjóðlegum reglum um upplýsingagjöf. Sérfræðingar segja að í þessu tilfelli sé bakterían vel þekkt og breiðist ekki hratt út.