Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á viðhorfum íslenskra karla. Hann segir niðurstöðurnar hafa verið teknar gagnrýnislaust upp þrátt fyrir alvarlega annmarka og varar við því að pólitísk hugmyndafræði fái að ráða ferðinni í vísindum. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Spjallsins með Frosta Logasyni á Brotkasti.
Tilefni viðtalsins er skýrsla hugveitunnar Equimundo um viðhorf íslenskra karla til jafnréttis, karlmennsku og ofbeldis. Skýrslan vakti mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum, meðal annars vegna niðurstaðna sem gáfu til kynna að verulegur hluti íslenskra karla hefði jákvæð viðhorf til ofbeldis.
Í kjölfarið stigu íslenskir félagsvísindamenn fram og gerðu alvarlegar athugasemdir við rannsóknina og þær ályktanir sem dregnar höfðu verið af niðurstöðum hennar.
Kolbeinn segir það hafa verið ánægjulegt að sjá vísindasamfélagið bregðast við með þessum hætti, en gagnrýnir að fjölmiðlar hafi ekki sjálfir sýnt meiri fyrirhyggju áður en niðurstöðurnar voru birtar.
„Hvar eru ritstjórarnir?“
Kolbeinn segir að fyrstu viðbrögð fjölmiðla hafi verið að taka niðurstöðum skýrslunnar sem gefnum og leita viðbragða við þeim, fremur en að kanna fyrst hvort rannsóknin stæðist fræðilegar kröfur.
„Mér finnst þetta ekki góð meðferð á skattpeningum Norðurlandabúa,“ segir Kolbeinn um fjármögnun rannsóknarinnar og vísar til aðkomu Norrænu ráðherranefndarinnar.
Hann beinir þó ekki síður sjónum að vinnubrögðum íslenskra ritstjórna.
„Auðvitað gerist það að blaðamenn, bara eins og allir aðrir, gera mistök og hafa ekki forsendur til að meta hlutina. Þá er það auðvitað ritstjóranna og fréttastjóra að stoppa og segja: Bíddu, ertu búinn að tékka á þessu?“
Kolbeinn segir stundum virðast skorta grundvallargæðastjórnun þegar fjölmiðlar fjalla um vísindarannsóknir.
„Stundum fæ ég þá tilfinningu þegar ég les vísindaumfjöllun í íslenskum fjölmiðlum að blaðamenn bara sjái eitthvað á netinu, skrifi eitthvað upp, taki kannski eitthvað snöggt viðtal og ýti svo bara á birta.“
Hann segir afleiðinguna geta orðið þá að rannsóknir sem ekki standast nánari skoðun móti opinbera umræðu áður en nokkur hefur sannreynt niðurstöðurnar.
„Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn telur viðbrögðin við skýrslunni jafnframt segja nokkuð um þær hugmyndir sem hafi fest rætur í samfélaginu um íslenska karlmenn.
Hann segir athyglisvert hversu auðveldlega jafnvel vel menntað og upplýst fólk hafi tekið niðurstöðunum sem trúverðugum, þótt þær samræmdust illa öðrum rannsóknum og hversdagslegri reynslu.
„Það að eitthvað komi okkur ekki á óvart þýðir ekki að það sé í samræmi við raunveruleikann. Það getur líka bara þýtt að það sé í samræmi við okkar eigin ranghugmyndir,“ segir Kolbeinn.
Hann tengir þetta meðal annars við umræðu undanfarinna ára um unga karlmenn, áhrifavalda á samfélagsmiðlum og sjónvarpsþáttinn Adolescence, sem hann segir hafa verið notaðan í umræðu um stöðu drengja og karla.
„Einhvern veginn erum við komin á einhvern stað þar sem við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla.“
Kolbeinn bendir á að önnur alþjóðleg könnunargögn dragi upp allt aðra mynd af viðhorfum íslenskra karla.
Íslenskir karlar meðal þeirra jafnréttissinnuðustu
Kolbeinn vísar sérstaklega til gagna úr International Social Survey Programme, þar sem spurt hefur verið um viðhorf til kynjahlutverka, fjölskyldu og jafnréttis.
Hann segir þau gögn sýna að íslenskir karlar, ásamt körlum á öðrum Norðurlöndum, séu meðal þeirra jafnréttissinnuðustu sem finnist í alþjóðlegum samanburði.
„Íslenskir karlar eru bara almennt mjög áfram um jafnrétti og sjá það sem hlutverk karla og kvenna að bæði sinna börnum og fjölskyldu og heimilisstörfum og tekjuöflun.“
Kolbeinn telur mikilvægt að horfa til slíkra gagna áður en dregnar eru stórar ályktanir um viðhorf íslenskra karla út frá einni rannsókn.
Gagnrýnir pólitíska hugmyndafræði innan félagsvísinda
Umræðan í viðtalinu einskorðast þó ekki við Equimundo-skýrsluna.
Kolbeinn lýsir áhyggjum af þróun innan tiltekinna greina félagsvísinda þar sem pólitísk hugmyndafræði geti haft áhrif á það hvaða spurningar séu lagðar fram og hvernig rannsóknarniðurstöður séu túlkaðar.
Hann gerir greinarmun á fræðilegum rannsóknum á kynjatengdum málefnum og nálgunum þar sem ákveðnar pólitískar forsendur séu lagðar til grundvallar.
Í viðtalinu er meðal annars fjallað um svonefnt Grievance Studies Affair, þar sem þrír fræðimenn sendu vísvitandi tilbúnar og fáránlegar rannsóknargreinar til fræðitímarita til að prófa gæði ritrýninnar.
Eitt þekktasta dæmið snerist um meinta nauðgunarmenningu í hundagörðum.
Kolbeinn segir slík mál vekja spurningar um hvort sum fræðitímarit hafi slakað á kröfum um aðferðafræði og sönnunargögn þegar rannsóknir samræmast ákveðnum hugmyndafræðilegum viðhorfum.
„Við þurfum aftur að innleiða raunvísindayfirlæti“
Kolbeinn segir félagsvísindamenn ekki mega gefast upp á vísindalegri nákvæmni þótt rannsóknir á mannlegu samfélagi séu oft flóknari en rannsóknir innan raunvísinda.
Hann notar í þessu samhengi hugtakið physics envy, eða eðlisfræðiöfund, sem hefur verið notað um tilhneigingu félagsvísindamanna til að vilja líkja eftir aðferðafræði raunvísindanna.
„Ég er dálítið á því að við þurfum aftur að innleiða raunvísindayfirlæti og við þurfum líka aftur að normalísera að vera með eðlisfræðiöfund,“ segir Kolbeinn.
Hann telur að félagsvísindin eigi að leitast við að nálgast sömu kröfur um prófanlegar tilgátur, samanburð og trausta aðferðafræði og raunvísindin, eftir því sem viðfangsefnin leyfa.
„Raunvísindin eru gullstandardinn í því hvernig vísindi þurfa að eiga sér stað.“
Kolbeinn segir það ekki réttlæta veikari vísindaleg vinnubrögð að erfitt geti verið að framkvæma tilraunir á fólki eða einangra breytur í samfélagsrannsóknum.
Markmiðið verði alltaf að afla eins áreiðanlegrar þekkingar og mögulegt er og vera tilbúinn að endurskoða niðurstöðurnar í ljósi nýrra gagna.
„Ef þessir mekanismar virka ekki tapar háskólasamfélagið trúverðugleika“
Kolbeinn telur að íslenskt háskólasamfélag þurfi að vera opnara fyrir gagnrýni fræðimanna á rannsóknir hver annars.
Hann segir smæð samfélagsins og ótta við hörð viðbrögð geta orðið til þess að fræðimenn veigri sér við að gagnrýna vinnubrögð samstarfsfólks síns opinberlega.
Hann fagnar því að fræðimenn hafi stigið fram og gert athugasemdir við Equimundo-skýrsluna og vonast til að slíkt verði algengara.
„Háskólasamfélagið á að vera með þessa sjálfsleiðréttandi mekanisma. Þannig að þegar vondar hugmyndir koma fram þá eru þær gagnrýndar og það verður debatt og við færumst áfram.“
Að öðrum kosti sé hætta á að háskólasamfélagið glati því trausti sem vísindastarf byggist á.
„Ef þessir mekanismar virka ekki, þá tapar háskólasamfélagið tilgangi sínum og trúverðugleika.“
Í viðtalinu er einnig rætt um stöðu kynjafræði, pólitíska slagsíðu í rannsóknum, ábyrgð fjölmiðla og mikilvægi þess að vísindaleg þekkingarleit sé ekki látin víkja fyrir fyrirfram ákveðnum hugmyndafræðilegum niðurstöðum.