Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað.
Trump greindi frá samkomulaginu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í kvöld. Þar sagði hann að Rússar myndu þegar í stað setja rúmlega 300 þúsund tonn af díselolíu á bandaríska og alþjóðlega markaði.
Mikið magn dísels
Því næst ættu 500 þúsund tonn að koma á markað í nóvember og önnur milljón tonna skömmu síðar. Trump sagði jafnframt að Rússar gætu afhent þrjár milljónir tonna til viðbótar á skömmum tíma, eftir því hvernig ástand rússneskra olíuhreinsistöðva þróaðist.
„Díselverð fyrir Bandaríkjamenn og raunar allan heiminn mun LÆKKA, Í METTÖLUM OG HRATT,“ skrifaði Trump.
Bandaríkjaforseti hefur verið undir vaxandi þrýstingi vegna eldsneytisverðs síðustu vikur. Meðalverð á dísilolíu í Bandaríkjunum er nú rúmir sex dalir á gallonið, um 203 krónur á lítrann, og hefur hækkað verulega frá því að stríðið við Íran hófst í febrúar.
Kominn í kosningagír
Þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum 3. nóvember og verðbólga og hækkandi framfærslukostnaður hafa orðið sífellt fyrirferðarmeiri í kosningabaráttunni.
Skömmu eftir tilkynningu Trump gaf bandaríska fjármálaráðuneytið út tímabundið leyfi sem gerir viðskipti með rússneska díselolíu möguleg þrátt fyrir refsiaðgerðir gegn Rússlandi.
Samkomulagið mun eflaust fá slæmar móttökur í Úkraínu. Bandaríkjamenn hafaundanfarin ár leitast við að takmarka tekjur Rússa af eldsneytisútflutningi. Trump undirritaði umfangsmikil ný lög um refsiaðgerðir gegn Rússlandi í síðasta mánuði, meðal annars gegn rússneskum bönkum, embættismönnum og svonefndum skuggaflota olíuskipa.
Bandaríkjastjórn hefur einnig þrýst á önnur ríki um að losa olíu og eldsneyti úr neyðarbirgðum til að auka framboð á heimsmarkaði.