J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, en Hasan var sjálfur hermaður. Upplýst hefur verið að Hasan verði tekinn af lífi í desember næstkomandi með aftökusveit og að streymt verði beint frá aftökunni. Vance segir hins vegar að það sé ekki öruggt að það verði yfirhöfuð af beina streyminu en segir að verði aftakan sýnd beint muni hann ekki horfa.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“