„Þau eru auðvitað stórkostleg og ég byrja á því að óska henni til hamingju,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, inntur eftir viðbrögðum sínum við því að Anne Carson hljóti bókmenntaverðlaun Nóbels.
Tilkynnt var um það í gær að Anne, sem er kanadísk en búsett á Íslandi og með íslenskan ríkisborgararétt, hlyti verðlaunin. Þetta er í annað sinn sem Íslendingur hlýtur Nóbelsverðlaun í bókmenntum.
„Þetta er skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt og er ýmist íslenskir ríkisborgarar eða ekki,“ segir Logi.
Hann segir þetta áminningu til Íslendinga um að huga sérstaklega að þessum hópi.
Logi hefur í hyggju að hitta hana. „Við munum alveg örugglega sýna henni sóma, virðingu og þakklæti. Við ákváðum að leyfa henni að njóta dagsins aðeins í gær en við munum hafa samband við hana og finna leiðir til þess að samgleðjast henni og þakka henni fyrir.“
Spurningunni um það hvort verðlaunaféð, um 152 milljónir íslenskra króna, verði skattlagt vísar Logi á fjármálaráðherra. „Ég bara er ekki klár á því.“