Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna króna skuldar, auk dráttarvaxta. Skráður forsvarsmaður fyrirtækisins virðist heldur ekki finnast en hann er skráður með óþekkt heimilisfang. Umræddur aðili virðist hafa haft með höndum rekstur á öðru fyrirtæki, í sama húsi, en starfsemi þess virðist hafa verið hætt.
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki