Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.
Þetta kemur fram í tilkynningu.
Sigurveig fæddist í Reykjavík 9. september 1943 og lést í dag, 9. október. Hún var yngst fjögurra systkina. Foreldrar hennar voru Jón Sigurður Helgason stórkaupmaður og Hanna Alvilda Helgason húsmóðir.
Hún átti þrjá bræður, tveir þeirra eru látnir. Þeir eru myndlistarmaðurinn Torfi og Helgi V. lögmaður og endurskoðandi. Eftirlifandi er Hallgrímur G. Jónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri.
Sigurveig giftist Víglundi Þorsteinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra B.M. Vallár, árið 1964. Þau skildu. Víglundur lést 2018.
Synir þeirra eru Jón Þór, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Þorsteinn, forstjóri Hornsteins og Björn, sölustjóri hjá Heklu. Barnabörnin eru átta og eitt barnabarnabarn.
Sigurveig starfaði lengst af starfsævinni við fjölmiðla. Hún var blaðamaður á Vísi, fréttamaður á Ríkisútvarpinu og síðar varafréttastjóri og fréttastjóri á fréttastofu Stöðvar 2.
Hún var um hríð upplýsingafulltrúi Íslandsbanka og lauk starfsævinni sem sjálfstætt starfandi rithöfundur.