Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir þessu og leiðbeint þeim.
RÚV hefur eftir Þórarni Inga Péturssyni þingmanni Framsóknarflokksins að hópur þing- og heimamanna hafi skellt sér í laugina eftir lokun, með leyfi sveitarstjórnarfulltrúa. Þeim hafi verið leiðbeint hvernig þeir ættu að bera sig að.
Kjördæmavika Alþingis var í síðustu viku og formleg dagskrá var á Vopnafirði á miðvikdag. Þingmenn sóttu kynningu hjá Six Rivers, fyrirtæki Jims Ratcliffe, og kvöldverð á hótelinu Fossgerði ásamt sveitastjórnarfulltrúum í Vopnafjarðarhreppi.
Samkvæmt umfjöllun RÚV mun Stefán Guðnason, oddviti sveitarstjórnarinnar, hafa orðið var við að hugmyndir um þetta hafi borið á góma yfir kvöldmatnum. Hann hafi brýnt fyrir sveitarstjórnarfólkinu að taka ekki þátt.
Það sé sömuleiðis vitað að heimamen fari stundum í sund utan opnunartíma, áður hafi laugin verið opin allan sólarhringinn. Ekkert sé aðhafst gangi fólk vel um. Vísir ræddi einnig við umsjónarmann laugarinnar sem kannaðist ekki við málið.