Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.
Þetta segir Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur sem telur að með markvissri heilsueflingu megi snúa öldrun til betri vegar. Það sé fjárfesting en ekki kostnaður.
Janus segir vanta stuðning hins opinbera og að heilbrigðiskerfið sinni ekki forvörnum. Þar sé verið að bregðast við frekar en að ráðast að rót vandans, enda setji Ísland minnst fjármagn allra Norðurlandanna í heilsutengdar forvarnir.
„Þú getur gert svo margt til að auka bæði heilsuna þína og ég tala nú ekki um lífsgæðin á efri árum en til þess að ná þessu markmiði þá þarftu að stunda markvissa heilsueflingu, svona gagnreyndar aðferðir, og þær geta þá snúið öldrunarferlinu við um tíma,“ segir Janus.