Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn Ladbible greinir frá þessu.El Hijo de Fishman, grímuklæddur mexíkóskur fjölbragðaglímukappi, hefur verið handtekinn og er grunaður um að hafa valdið dauða dómara í hringnum. Notaði Fishman ólöglegt tak á dómarann.Ekki hefur verið greint frá nafni Fishman því að mexíkóskir glímukappar fela nöfn sín, en hann er 36 ára gamall og sonur annars glímukappa sem einnig var kallaður Fishman.
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum