Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar – að landið banni minkarækt og fari þannig að dæmi annarra landa í Evrópu.
Kveikur fjallaði um aðbúnað á minkabúum síðasta vetur. Þá voru sex minkabú í landinu. Nú er aðeins eitt eftir, Dalsbúið í Mosfellsbæ, þar sem brotist var inn í júlí.
Rósa Líf Darradóttir sem situr í stjórn Samtaka um dýravelferð segir eitt minkabú vera einu of mörg.
„Mér finnst ekki ganga miðað við þá þekkingu sem við höfum í dag hvað varðar velferð dýra, hvað varðar lýðheilsu, hvað varðar vistkerfin okkar á Íslandi, að við séum að fjöldaframleiða dýr sem búið er að skilgreina sem framandi ágenga tegund,“ segir Rósa Líf.
Hún segir áhættuna af því að leyfa loðdýrarækt mun meiri en mögulegan ábata og að ekki gangi að bíða eftir því að greinin lognist út af.
Bann við loðdýrarækt ekki á dagskrá atvinnuvegaráðherra
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í nóvember um breytingar á dýraverndarlögum.
Rósa Líf gagnrýnir að Hanna Katrín hyggist ekki banna minkarækt í frumvarpinu.
„Mér finnst það eiginlega ekki ganga að taka ekki loðdýrabúin eða minkaræktina í reikninginn þegar á að fara í þessa vinnu að uppfæra dýravelferðarlögin, sem er tækifæri sem kemur bara á tíu ára fresti.“
„Ég fór einmitt upp í atvinnuvegaráðuneyti í dag og sýndi þeim skýrsluna sem ég vann fyrir þau og ég vona bara að ráðherra gefi sér tíma í að renna yfir hana því ég er búin að taka saman öll helstu gögn og rök gegn þessum iðnaði,“ segir Rósa Líf.