Þátturinn hefst klukkan 19:20 á Sýn og Vísi.
Það verður nóg um að vera í þættinum þar sem margar af ástsælustu sjónvarpsstjörnum landsins rifja upp góðar stundir og bjóða upp á glænýtt efni. Má þar meðal annars nefna nýjan „skets“ frá Fóstbræðrum en þetta verður í fyrsta skipti í 25 ár sem nýtt efni kemur frá grínhópnum.
Þá mun Auðunn Blöndal stjórna þeim Binna Glee og Patrek Jamie á sinn einstaka hátt. Stjórnandi þáttarins er Björn Bragi Arnarsson. Á meðal gesta í sjónvarpssal eru Vala Matt, Simmi Vill, Sindri Sindra og enginn annar en Jón Jónsson tekur sérstakt Stöðvar 2 lag í lok þáttar.
Þátturinn hefst, eins og áður segir, klukkan 19:20 og verður í beinni útsendingu á Sýn í öllum myndlyklum og að sjálfsögðu hér á Vísi.