Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolíu fyrir Bandaríkin og alþjóðamarkað tafarlaust.
Trump greindi frá þessu í færslu á Truth Social í gær og sagði að samtal þeirra tveggja hafi verið mjög árangursríkt.
Bandaríkjaforseti segir að Rússland afhendi auk þess 500.000 tonn af dísil í nóvember og eina milljón tonna í desember. Rússlandsforseti sagði í samtali við rússneska fjölmiðla að til lengri tíma litið gætu Rússar afgreitt allt að þrjár milljónir tunna af olíu á mánuði.
Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti hefur gagnrýnt samninginn og segir hann óheiðarlegan, ósamboðinn bandamönnum og veikburða ákvörðun.
Zelensky segir að með samningnum fái Rússar aukið fjármagn til stríðsrekstursins og það geri Pútín kleift að heyja enn harðara stríð í Úkraínu.
Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur veitt Rússum leyfi fyrir sölu, afhendingum, affermingu og innflutningi á dísilolíu frá Rússlandi fram til 7. apríl 2027.
Verð á bensíni og dísil hefur hækkað mikið í Bandaríkjunum síðan stríðið hófst í Mið-Austurlöndum í lok febrúar. Verð á galloni af bensíni hefur hækkað um 46% og um 67% á galloni af dísil á sama tíma.
Í færslu sinni á Truth Social sagði Bandaríkjaforseti að lægra verð fyrir Bandaríkjamenn væri hans helsta forgangsmál, sér í lagi fyrir bændur og vöruflutningabílstjóra.