Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið og er auðvelt að verða sér út um þá í gegnum samfélagsmiðla. Mismunandi tegundir eru sagðar geta hjálpað fólki að grennast, auka heilastarfsemi, bæta húðina og margt fleira. Þessi peptíð eru þó stórhættuleg þar sem um er að ræða lyf sem eru ekki samþykkt og því alls óvíst hvað fólk er að sprauta í sig. Í þættinum Átakalínur er rætt við Hjalta Kristinsson, sérfræðing hjá Lyfjastofnun og lektor í lyfja og eiturefnafræði við Háskóla Íslands, og Joshua Kingdon fjarþjálfara.
Átakalínur: Hvað eru ólögleg peptíð og hvers vegna eru þau úti um allt?