Það má segja að frönsk stjórnvöld og franskir stjórnmálamenn séu milli steins og sleggju þessa dagana. Annars vegar eru það víðtæk mótmæli, sem hófust vegna djúpstæðrar og langvarandi óánægju nemenda og kennara í skólum landsins með yfirfulla bekki, slæmar aðstæður og skort á kennurum svo fátt eitt sé nefnt; þeirra krafa er að aukið fé verði sett í franska menntakerfið.
En á sama tíma standa frönsk stjórnvöld frammi fyrir því að þurfa að skera niður opinber útgjöld og koma meira jafnvægi á fjármál ríkisins. Frakkland hefur nefnilega verið að safna skuldum í langan tíma og framúrkeyrslan hefur verið fjármögnuð með útgáfu skuldabréfa og lántökum, sem eru að verða stærri og stærri myllusteinn um háls franskra skattgreiðenda.
Sebastian Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, og ríkisstjórn hans eru vel meðvituð um þennan vanda; í síðustu viku lagði stjórnin fram fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár, þar sem gert er ráð fyrir 43 milljarða evra niðurskurði og skattahækkunum, til að koma fjárlagahallanum úr 5,4 prósentum í 5 prósent á næsta ári - sem þó er vel fyrir ofan þriggja prósenta markið sem aðildarríki Evrópusambandsins eiga að gangast undir.
Opinberar skuldir Frakklands nema nú um 120 prósentum af vergri þjóðarframleiðslu - sambærilegt hlutfall á Íslandi var í fyrra rúmlega 84 prósent.
Borga meira í vexti en varnarmál og skólakerfi
„Ef [stjórnin] getur afgreitt fjárlögin með minni útgjöldum og lægri halla, eins og hún leggur til, þá mun það róa fjármálamarkaði,“ sagði Emmanuel Moulin, franski seðlabankastjórinn, fyrir nokkrum dögum í samtali við Financial Times dagblaðið. „Ef ekkert er að gert, þá eigum við á hættu að lenda í kyrkingaról hækkandi vaxta,“ bætti hann við.
Þessi varnaðarorð eru ekki sögð að ástæðulausu. Vaxtagreiðslur eru núna einn af stærstu útgjaldaliðum franska ríkisins og gætu farið í 90 milljarða evra á næsta ári, sem er meira en Frakkar eyða í menntamál og varnar- og öryggismál.
Skuldabréfamarkaðir - og þeir sem sýsla með slík bréf sem ríki eins og Frakkland gefa út - fylgjast að vonum grannt með þróun mála: ávöxtunarkrafa á frönsk skuldabréf hefur verið að hækka að undanförnu, sem þýðir auðvitað að það verður dýrara fyrir franska ríkið að slá lán.
Forsetakosningar flækja málið
Franska ríkisstjórnin er þannig í klemmu á milli almennings annars vegar - sem hefur lítinn áhuga á niðurskurði, og skuldabréfamarkaða hins vegar, sem fylgjast grannt með ríkisfjármálum og veðja á að skuldastaða Frakklands versni.
Pólitíska klemman sem Sebastian Lecornu er í er heldur ekki auðveld. Lecornu fer fyrir minnihlutastjórn sem reiðir sig á stuðning mismunandi hópa í stjórnarandstöðunni og afgreiðsla fjárlaga hefur reynst honum - og fyrri forsætisráðherrum - erfið eins og Francois Bayrou getur væntanlega vitnað um; Bayrou fékk á sig vantraustsyfirlýsingu þingsins í fyrrahaust eftir að hafa reynt hvað hann gat til að skera niður.
Komandi forsetakosningar í Frakklandi næsta vor flækja málið enn frekar; frambjóðendur hafa verið ósparir á loforð um aukin útgjöld, en talað minna um nauðsyn þess að draga saman.
Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar (og líklegur sigurvegari í kosningunum samkvæmt könnunum) hefur þó lofað að draga úr fjárlagahalla - án þess þó að fara nánar í útfærsluna - og fréttaskýrendur hafa bent á að meðan hún vill ekki hækka eftirlaunaaldur í Frakklandi, þá séu loforð um niðurskurð ekki mjög marktæk.
Jean Luc-Mélenchon, leiðtogi vinstri manna í La France Insoumise, hefur talað um að Frakkland ætti að slaufa ríkisskuldum, í stað þess að borga þær; ummæli sem urðu hreint ekki að róa fjármálamarkaði.
Gullin stytta af Trump vekur athygli í Strassborg
Þingfundir Evrópuþingsins verða stundum vettvangur uppákoma eða atburða sem ætlað er að vekja athygli og umhugsun þingmanna (og ekki síður fjölmiðla) sem eru á staðnum.
Eitt slíkt var sett upp í byggingu Evrópuþingsins í Strassborg fyrr í vikunni, þegar allir (eða flestir allavega) 720 þingmenn komu þangað á þingfund: gullhúðuð stytta af Donald Trump Bandaríkjaforseta, sem situr (nakinn) á herðum mun minni manneskju og heldur á golfkylfu.
Verkið, sem kallast „Konungur óréttlætis“ er eftir danskan listamann, Jens Galschiøt, sem segir að hann hafi fengið innblástur úr sögunni eftir Hans Christian Andersen um Nýju fötin keisarans.
Samlandi Galschiøt, Evrópuþingmaðurinn Per Clausen sem kemur af vinstri vængnum, bauð listamanninum að koma með verkið í Evrópuþingið.
Clausen sagðist í samtali við fjölmiðla ekki óttast viðbrögð úr Hvíta húsinu. „Ef einhver er svo hörundsár að geta ekki þolað það að þessi stytta sé sýnd í Evrópuþinginu, þá á viðkomandi ekki að vera á sviði heimsmálanna.“