Einmanaleiki hefur aukist undanfarna áratugi. Hann hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.
Að jafnaði upplifa 36% þjóðarinnar sig oft, stundum eða alltaf einmana. Af þeim eru konur gjarnan í meirihluta.
Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður.
Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, var gestur Spegilsins í gær.
Hægt að skipta einmanaleika upp í þrjár gerðir
Halldór segir að hægt sé að skipta einmanaleika upp í þrjár týpur. Í fyrsta lagi sé það félagslegur einmanaleiki, sem snúist um tíðni þeirra samskipta sem fólk á, fjölda vina og heimsókna. Í öðru lagi tilfinningarlegur einmanaleiki, sem snúist um merkingarbærni samskipta, væntumþykju og tengsl.
„Og svo erum við með tilvistarlegan og það er svona alvarlegri týpa af einmanaleika. Hann snýst um það hvort við yfirhöfuð tilheyrum, hverjum við tilheyrum og hvaða samfélagi.“
Konur upplifa oftar einmanaleika en karlar
Halldór segir að niðurstöður ýmissa rannsókna bendi til þess að konur upplifi oftar tilfinningar sem tengjast einmanaleika en karlar.
„Það er auðvitað hægt að líta á þroskakenningar, hugmyndir okkar um hvort konur eða karlar séu næmari fyrir tilfinningum og eru að leita einhverra skýringa þar í gegn,“ segir Halldór og bætir við að upplifun á einmanaleika geti einnig verið mjög persónubundin.
„Ég held að það sé alveg ljóst, bæði gagnvart nýjum mæðrum og þess vegna eldri mæðrum líka, að ég held að það sé einn af þeim þáttum sem við þurfum að fara að veita athygli í nútímasamfélaginu.“
Breytt samfélagsgerð og fjölskyldumynstur hafa áhrif á nýbakaðar mæður, segir Halldór.
„Við þekkjum það frá fyrri tíð að, og jafnvel enn þá, að konur með nýfædd börn leita mikið til mæðra sinna til að fá leiðsögn og stuðning í þeim verkefnum sem þær þurfa að takast á við.“
Nú séu vísbendingar uppi um að þróun samfélagsins hafi ýtt undir aukinn einmanaleika kvenna sem séu mikið einar heima með ung börn.
Halldór telur þetta verkefni sem nauðsynlegt er að taka upp og skoða nánar. Þá sé mikilvægt að horfa til fyrstu þúsund daganna í lífi barns.
„Hversu grunnleggjandi þeir eru um tengslamyndun og þar erum við að tala um grunninn að einmanaleikanum síðar líka.“
Það var áður meira samfélagslegt verkefni að ala upp barn
Halldór segir að með þróun samfélagsins hafi það tengslanet sem ungir foreldrar hafa minnkað og breyst.
„Maður bæði hefur upplifað það sjálfur að alast upp með mömmu heima og pabba í vinnu. Amma og afi voru alltaf á staðnum.“
Hann segir það geta verið erfitt fyrir unga foreldra að leita til sinna nánustu eftir óvæntum stuðningi.
„Eða þurfum að láta grípa inn í einhvern sem er í nærsamfélaginu til þess að hjálpa til.“
Aukið hlutfall með einkenni fæðingarþunglyndis
Hlutfall kvenna á höfuðborgarsvæðinu sem sýnir einkenni fæðingarþunglyndis meira en tvöfaldaðist á ellefu ára tímabili.
Árið 2013 sýndu 8% kvenna einkenni fæðingarþunglyndis en 2024 var hlutfallið komið í 17%. Það jafngildir níu prósentustiga aukningu, eða 112,5% hlutfallslegri aukningu.
Þunglyndi er einn af áhættuþáttum einmanaleika.
Halldór telur nauðsynlegt að hver og einn líti sér nær og taki ábyrgð á því að vera í fjölskyldu.
„Við erum einhvern veginn svo laus í skuldbindingum núna að við þurfum aðeins að fara að hugsa það hvernig við getum bætt stöðu okkar og allra í kringum okkur.“