Indverska kakkalakkahreyfingin Janata hefur boðað til fjöldamótmæla í Delhi, höfuðborg Indlands, í dag til að krefjast endurbóta á kosningum og afsagnar yfirkjörstjóra landsins vegna endurskoðunar á kjörskrá landsins.
Indverskt dagblað greindi frá því í síðasta mánuði að kosninganefnd Indlands hefði fjarlægt nöfn úr kjörskrá við endurskoðun sína á kjörskrá landsins. Nefndin hefur hafnað þessum ásökunum. Mótmælendur krefjast þess að yfirkjörstjórinn Gyanesh Kumar segi af sér vegna málsins.
Stjórnvöld hafa ekki gefið leyfi fyrir mótmælunum og tugþúsundir lögreglumanna og hermanna hafa verið sendir til höfuðborgarinnar vegna mótmælanna. Málmgrindur hafa verið settar upp við vegi til að loka fyrir aðgengi að stöðum þar sem mótmæli eiga að fara fram.
Þessar aðgerðir lögregluyfirvalda hafa valdið miklum truflunum og töfum á samgöngum í Mið-Delhi í morgun.
Kakkalakkahreyfingin stóð fyrir miklum mótmælum í júlí vegna prófahneykslis og þá kom til harðra átaka milli mótmælenda og lögreglu. Mótmælin leiddu þó til þess að menntamálaráðherra landsins sagði af sér.