Von er á hægri breytilegri átt og dálitlum skúrum í flestum landshlutum í dag en á morgun nálgast landið lægð og bætir í vind og úrkomu annað kvöld. Þetta er meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:
Í dag erum við á milli veðrakerfa og það er því fremur hæg breytileg átt og dálitlar skúrir í flestum landshlutum. Hiti 3 til 10 stig.
Skammt vestur af Hvarfi er vaxandi lægð sem nálgast landið á morgun. Það verður því suðaustanátt og dálítil væta sunnan- og vestanlands en annars bjartviðri. Annað kvöld bætir í vind og úrkomu, víða hvassviðri seint um kvöldið og sums staðar talsverð
rigning aðfaranótt mánudags.