Trump tilkynnti um samkomulagið á samfélagsmiðli sínum Truth Social á föstudag. Þar sagði hann Pútín hafa samþykkt að setja þegar í stað þrjú hundruð þúsund tonn af díselolíu á bandarískan markað og heimsmarkað. Hálf milljón tonna til viðbótar kæmi í nóvember og önnur milljón þar á eftir.
Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins hefur bandaríska fjármálaráðuneytið gefið út tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum sem heimilar viðskiptin til 7. apríl. Aðrar þvinganir, meðal annars frysting rússneskra eigna í bandarískum bönkum, haldast í gildi.
Selenskí segir samkomulagið jafngilda „fjárfestingu í stríði sem verður að binda enda á, ekki framlengja“. Rússar muni gjalda fyrir olíuviðskiptin með „frekari ógnarverkum“.
„Við treystum á sanngjarnan stuðning Bandaríkjanna við varnir okkar fyrir lífi fólks í Úkraínu — og að Bandaríkin tali af samsvarandi festu við Rússland. Af festu, ekki veikleika,“ skrifaði forsetinn á samfélagsmiðla.
Óvíst hvort Rússar geti staðið við afhendinguna
Trump sagði að þrjár milljónir tonna til viðbótar gætu borist innan skamms. Það ylti þó á ástandi rússneskra olíuhreinsistöðva, sem Úkraínumenn hafa ítrekað ráðist á.
Pútín staðfesti síðar að hann hefði rætt stöðu orkumála í heiminum við Trump á föstudag. Rússar væru reiðubúnir að selja olíu og olíuafurðir til Bandaríkjanna og á heimsmarkað. Hann nefndi engar tölur um fyrirhugaða afhendingu.
Sérfræðingar sem breska ríkisútvarpið ræddi við draga bæði í efa að Rússar geti afhent þetta magn og að viðskiptin muni lækka eldsneytisverð að ráði.
Tim Armitage, fjárfestingarsérfræðingur hjá Quilter Cheviot, segir fyrstu afhendinguna samsvara um 2,25 milljónum tunna. Dagleg díselolíunotkun Bandaríkjamanna nemi hins vegar um 3,8 milljónum tunna. Magnið muni því ekki hafa veruleg áhrif á verðið á dælunni.
Eldsneytisverð þrengir að Trump
Rússar hafa þó sjálfir glímt við eldsneytisskort í kjölfar árása Úkraínumanna á olíuhreinsistöðvar. Alþjóðaorkumálastofnunin áætlar að dísilolíuframleiðsla landsins hafi dregist saman um tæp þrjátíu prósent.
Trump hefur lýst óánægju með árásirnar og kennt þeim um hækkandi eldsneytisverð. Selenskí varði þær á föstudag og sagði þær svar við áralöngum árásum Rússa á orkumannvirki Úkraínu.
„Úkraína mun ekki kveikja í rússneskum olíuhreinsistöðvum ef Rússland hættir að eyðileggja orkumannvirki okkar.“