Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um málið og rætt við Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing sem segir ákvörðun Trump enn eitt dæmið um að Evrópa standi ein með Úkraínu.
Þá verður rætt við þingmann Sjálfstæðisflokksins sem segir tíma til kominn að framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar jafni sig á tapinu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi viðræður um aðild að ESB. Þá séu orð Rubio um viðskipti Íslands og Bandaríkjanna í samræmi við áherslur Sjálfstæðisflokksins.
Samfylkingin kýs sér nýjan varaformann í dag á flokksstjórnarfundi í Suðurnesjabæ. Einn er í framboði en framboðsfrestur en framboðsfrestur rennur út klukkan tvö í dag.
Verkjalyf og önnur lausasölulyf gætu orðið fáanleg í matvöruverslunum og á bensínstöðvum verði frumvarp þingmanna Viðreisnar að lögum. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins segir markmiðið að bæta aðgengi að lyfjunum og auka samkeppni.
Fjörutíu ár eru liðin frá leiðtogafundi Regan og Gorbatsjov í Höfða og í dag gefst landsmönnum kostur á að skoða það sögufræga hús. Tilefnið er friðarvika á vegum Reykjavíkurborgar.
Í íþróttum verður fjallað um enska boltann sem fer af stað á nýjan leik í dag eftir landsleikjahlé sem og mikilvæga leiki í fallbaráttunni í Bestu deild karla.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.