Engin af þyrlum Landhelgisgæslunnar var til taks í vikunni þegar bilun kom upp í einu tiltæku þyrlunni.
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag sem hefur eftir Ásgeiri Erlendssyni, samskiptastjóra Landhelgisgæslunnar, að strax hafi verið brugðist við og þyrlan var orðin flughæf nokkrum klukkustundum síðar.
Þrjár þyrlur eru í flota Landhelgisgæslunnar og Ásgeir segir að alla jafna sé ein þeirra í langtímaviðhaldi. Tvær þyrlur eigi alltaf að vera til taks en lítinn hluta ársins sé aðeins ein þyrla flotans aðgengileg.
Það var staðan í vikunni þegar bilunin kom upp. Morgunblaðið hefur eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að Landhelgisgæslan hafi gripið til ráðstafana til að lágmarka áhættu þegar tvær þyrlur eru til taks, svo sem með því að fjölga flugvirkjum og breyta vaktafyrirkomulagi til að lágmarka tíma sem fari í að leysa óvæntar bilanir.
Hún segir það óskastöðu að Landhelgisgæslan hafi fjórar þyrlur í flotanum en það sé kostnaðarsamt skref.