Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný - Vísir

Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný - Vísir

Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný - Vísir

Margrét Bjarnadóttir er fædd árið 1981, býr í Vesturbænum og er listamaður í orðsins fyllstu merkingu. Sköpunargleði hennar nær langt út fyrir afmarkað box, hún notar líkamann, hugann, tilfinningalífið og allt þar á milli í verkum sínum og hefur alla tíð verið óhrædd við berskjöldun og að mæta hinu óþægilega. 

Nýjasta verk hennar er bókin Varkár, sem er einstaklega hrá, persónuleg, einlæg og átakanleg saga um þrána eftir því að eignast barn og ítrekaðan fósturmissi sem hún sjálf gekk í gegnum, málefni sem er lítið rætt um. 

Margrét Bjarnadóttir fann mikinn styrk í sköpun eftir mjög erfiða tíma.Vísir/Anton

Í langan tíma gat hún ekki hugsað sér að ræða þetta við neinn nema sína allra nánustu og hafði enga löngun til að segja frá þessu opinberlega en að lokum varð bókin til og segir Margrét að hún hafi ekki getað gert sér í hugarlund hve frelsandi áhrif þessi afurð gæti haft á hana.

Of erfitt að ræða þetta fram að útgáfu

Blaðamaður settist niður með Margréti og ræddi við hana um lífið og tilveruna, áföll og uppbyggingu, listsköpun og skrifin og margt fleira.

„Í sumar, í aðdraganda útgáfunnar, þá var ég bara að hugsa um það hvernig ég myndi höndla útgáfuhófið, að lesa upp úr bókinni í fyrsta skipti fyrir framan fólk, fara í fyrsta viðtalið og hvernig ég gæti talað um þetta án þess að brotna. Af því ég hafði í raun talað svo lítið um þetta fram að þessu, ég ræddi þetta ekkert nema bara við mína nánustu og sálgreininn minn.

Ég fann mig mjög sjaldan í aðstæðum þar sem mig langaði til að deila þessu með fólki, því það var bara of erfitt. Ég var því búin að vera svolítið ein með þetta, ein í skrifunum og það voru mjög fáir sem lásu bókina áður en hún fór í prentun,“ segir Margrét í upphafi viðtalsins um það hvernig vikurnar fram að útgáfu hafi verið.

Margrét upplifði mikinn létti eftir að hún var búin að lesa upp úr bókinni í útgáfuhófinu. Viðtökurnar voru virkilega góðar og tóku vel utan um hana.Jana Björg Þorvaldsdóttir

Töfrar og léttir

Bókin Varkár kom út 11. september síðastliðinn og fólk byrjaði mjög fljótt að bregðast við.

„Frá því að bókin kom út er ég búin að upplifa þetta sem rosalegan létti. Ég hefði ekki getað trúað því, það eru einhverjir töfrar í því að senda þetta frá sér. Þá fyrst áttaði ég mig á því hvað þetta hafði verið íþyngjandi fyrir mig. 

Ég skil af hverju ég kaus að tala ekki mikið um þetta og ég skil af hverju konur í þessari stöðu gera það. Maður er að vernda sig og passa vel upp á þá litlu orku sem maður hefur.“

Léttirinn kom henni verulega á óvart og fjarlægðin sem hún upplifði sömuleiðis.

„Í raun finnst mér þetta hætt að snúast um mig. Þetta er orðið að verki sem lifir sjálfstæðu lífi.“

Viðbrögðin hafa að sama skapi verið ómetanleg.

„Það er eitthvað sem ég gat auðvitað ekki séð fyrir og er algjör bónusgjöf sem fylgir þessu. Ég hef bara heyrt brotabrot af upplifun fólks af bókinni en fengið skilaboð frá alls konar fólki og líka konum sem ég þekki ekki neitt sem hafa lesið bókina og deilt með mér þeirra stöðu. Það er mér mjög dýrmætt.“

Einmanalegt og fátt sem grípur

Það er lítið rætt opinberlega um fósturmissi og sannarlega ekki margar bækur sem segja frá slíkri lífsreynslu.

„Ég þekkti bara eina konu sem hafði misst oft og á endanum eignast svo barn. Það var einhvern veginn eina svona fyrirmyndin í mínu lífi en það voru engir hópar sem maður gat leitað til. Ég hef reynslu af því að verða ólétt og missa ítrekað og ég skil vel að konur í sambærilegri stöðu sem enda á því að eignast barn hafi litla löngun til að rifja fósturmissinn upp. 

Maður er svo fljótur að gleyma því sem á undan hefur gengið, þannig var það í hvert skipti sem ég varð ólétt. Ef þú eignast barn þá held ég að lífið haldi bara áfram og þú viljir ekki velta þér áfram upp úr einhverju sem tilheyrir fortíðinni.“

Margrét segist skilja vel að konur sem hafa farið í gegnum fósturmissi en eignist svo barn séu ekki að rifja upp fortíðina.Dóra Dúna

Því sé auðvelt að upplifa sig eina og reynslan geti verið mjög einmanaleg.

„Það var ein kona sem er barnlaus og hefur reynt lengi sem skrifaði mér og talaði um hvað þetta væri einmanalegt. Henni fannst erfitt en líka gott að lesa bókina og sjá að það væri önnur kona að upplifa þetta. Það er auðvelt að líða eins og maður sé eina konan á landinu sem er að ganga í gegnum þetta en auðvitað er það ekki þannig.“

Kláraði ritlist þegar rofaði til

Margrét skrifaði lítið sem ekkert á því tímabili sem bókin gerist en byrjaði á því nokkrum árum síðar, þó ekki til þess að gefa út bók.

„Þegar tímabilinu sem ég segi frá í bókinni lýkur þá tóku við um tvö ár af hálfgerðu frosti. Ég man mjög lítið frá þeim tíma, ég var að vinna en var búin að missa neistann og upplifði tilgangsleysi í fyrsta sinn á ævinni. Þegar það fór aðeins að rofa til hjá mér hugsaði ég með mér að það gæti verið sniðugt að klára meistaraverkefnið mitt í ritlist, en ég hafði tekið mér margra ára pásu frá náminu og átti lokaverkefnið eftir.

Það eina sem mér datt í hug var að skrifa út frá þessari reynslu, kannski leyndist eitthvað dýrmætt þar og mögulega einhver úrvinnsla fyrir mig í leiðinni. Þetta var alls ekki hugsað sem bók á þeim tímapunkti en meistaraverkefni í ritlist á samt að vera verk af listrænum toga en ekki ritgerð.“

Skrifin stundum óbærileg 

Margrét bað rithöfundinn Auði Övu að vera leiðbeinanda sinn, sem hún samþykkti og því byrjaði Margrét að senda henni nokkrar blaðsíður í senn.

Auður var strax mjög hvetjandi og sannfærði mig um að ég væri á réttri leið.

„Ég hafði nánast ekkert skrifað á þessu tímabili sem bókin segir frá og verkið er ekki unnið upp úr dagbókum en ég hélt alltaf dagbók þegar ég var yngri. Það minnkaði aðeins þegar ég fór í danshöfundanám en ég hef þó alltaf notað texta mikið og skrifað fyrir sviðsverkin mín. Þegar ég var átján ára var draumurinn að verða rithöfundur en mig langaði að sama skapi svo margt og fannst ég kannski ekki hafa neitt nægilega merkilegt að skrifa um. 

Nú finn ég sterkt hjá mér að þetta er það sem mig langar að gera en ég vona að ég þurfi ekki að upplifa eitthvað svona átakanlegt og erfitt til að finnast ég hafa eitthvað að skrifa um. Ég er alls ekki að biðja um það,“ segir Margrét smá kímin. Hún bjóst við því að þessi skrif yrðu ákveðin úrvinnsla fyrir sig en gat ekki gert sér í hugarlund hve mikið þau myndu stundum taka á.

Margrét upplifði stundum eins og skrifin væru að vinna gegn bata. Þegar uppi er staðið er hún gríðarlega þakklát fyrir þau.Vísir/Anton

„Á tímabili fannst mér eins og ég væri að vinna gegn eigin bata með skrifunum og hugsaði að þetta væri ekki að gera mér neitt gott. Góður dagur í skrifum þýddi ekki endilega góðan dag fyrir sálarlífið. Svo opnar maður tölvuna daginn eftir og það þyrmir svo yfir mann að maður getur ekkert skrifað í tvær vikur kannski. En svo komst ég í gegnum það og þegar upp er staðið gerði þetta mér miklu meira gott en öfugt. Það er erfitt að fara inn í sársaukann og það er auðveldara að reyna að forðast hann en það þýðir hinsvegar ekki að maður sleppi undan honum. Ég held að þetta hafi ekki gert mér neinn skaða, langt því frá. Og auðvitað voru skrifin líka ánægjuleg. Ég skemmti mér yfir mörgum köflum, hló og flissaði.“

Eftir útgáfuhófið fann Margrét strax fyrir miklum létti.

„Það var svo ánægjulegt hvað viðbrögðin komu fljótt. Bókin er fljótlesin með stutta kafla og fólk því fljótt að klára hana, sem varð til þess að viðbrögðin voru skjót og þau hafa ekkert stoppað. Þessar hlýju, miklu og sterku viðtökur eru búnar að halda svolítið utan um mig síðustu vikur og eru mjög umvefjandi. Mér líður smá eins og ég sé á brimbretti að sörfa í gegnum þetta.“

Sérð ekki hver ber harm sinn í hljóði

Margrét snerti á einmanaleikanum sem fylgdi því sem hún gekk í gegnum í viðtalinu og aðspurð hvað henni hafi þótt geta gripið sig betur segir hún að það mætti mögulega huga að honum í heilbrigðiskerfinu.

„Nú er ég komin út í einhverjar vangaveltur bara en ég held að það þurfi að geta verið möguleiki að bjóða upp á stað eins og Ljósið. Það eru ekkert endilega allar konur sem hafa þörf fyrir slíka aðstoð eða áhuga, auðvitað er það persónubundið.“

Það sé sömuleiðis auðvelt að líða eins og kvenleikinn manns sé ekki í takt við náttúruna.

„Þetta er einhver svona frumnáttúra og manni finnst barneignir vera svo mikill hluti af náttúrunni, ef við hugsum bara um líffræðina. Við lifum á tímum þar sem er hægt að fá alls konar aðstoð en svo er ekki hægt að hjálpa öllum. 

Ég fékk skilaboð frá konu sem hefur ekki getað eignast barn og hún sagði að sér liði oft eins og hún væri ekki alvöru kona en það hafi gefið henni mikinn styrk að lesa frá reynslu annarrar konu sem gekk í gegnum þetta. Kannski er það einhvers virði. 

Maður veit ekki alltaf hvaða kona hefur valið barnleysi og hver er að bera harm sinn í hljóði. Þú ert ekki að bera harm þinn í hljóði í eitthvað afkarmað tímabil, þetta er eitthvað sem þú lifir með.“

Hugmyndir um kvenleikann óumflýjanlegar

Hún segir þetta óumflýjanlega koma mikið inn á hugmyndir um kvenleikann.

„Og tilganginn, með stóru T-i. Þessar hugmyndir um hvað þú skilur eftir þig og að þú sem kona eigir að geta fætt líf inn í heiminn og viðhaldið því. Auðvitað eru konur með ólíkar skoðanir á þessu en frá náttúrunnar hendi upplifir maður að þetta sé hlutverk sem kvenlíkaminn á að takast á við. 

Ég skildi því konuna vel að líða eins og hún væri ekki alvöru kona og ég held að þetta sé algeng tilfinning hjá þeim sem geta ekki eignast börn.“

Margrét segir skiljanlegt að eiga í flóknu sambandi við kvenleikann í tengslum við það að geta ekki eignast börn.Vísir/Anton

Í skrifum við meistaraverkefnið fékk Margrét ábendingu um að þetta væri mögulega eitthvað sem ætti erindi út í samfélagið.

„Ég er alltaf að skilja það betur og betur. Ég sjálf veit ekki hvort ég hefði getað lesið þessa bók þegar ég var í miðjum storminum enda er örugglega mjög ólíkt hjá hverri og einni sem gengur í gegnum þetta hvað þær sækja í að lesa. Þó að ég sé ekki sú eina sem hefur gengið í gegnum endurtekinn fósturmissi og barnleysi þá eru ekki endilega margar þeirra sem skrifa bækur og kannski er einhvers virði að gefa fólki innsýn í þennan veruleika.

En svo langar mig að koma því að að ég vildi fyrst og fremst skrifa bókmenntaverk sem gæti staðið á styrkum fótum sem slíkt. Markmiðið var ekki bara að reyna að gefa innsýn í reynsluheim, ég vildi skrifa bókmenntatexta sem gæti virkað á nokkrum plönum og ég leyfi mér alls konar útúrdúra þannig að bókin kemur inn á ýmislegt sem hefur ekkert með fósturmissi eða barnleysi að gera. Ég vildi að léttleikinn, fegurðin, húmorinn, sorgin og djúpur harmurinn gætu verið í samfloti í verkinu. Að allt þetta fengi rými.“

„Þú ert ekki söm eftir hvert skipti“

Þrátt fyrir að pör gangi saman í gegnum það að missa fóstur er upplifun beggja aðila að mörgu leyti ólík.

„Báðir aðilar eru með sömu vonir og væntingar og sjá fyrir sér líf og framtíð með barninu. Báðir aðilar eru að missa það sama en konan sem er ólétt er ofan á allt að ganga í gegnum allt þetta líkamlega, allt sem snýr að hormónarússinu. Ég held að þetta sé eitthvað sem vísindin eru ekki búin að rannsaka fyllilega og mér finnst svo áhugavert. 

Eins og í mínu tilfelli voru þetta dulin fósturlát sem skiluðu sér ekki náttúrulega og því þurfti ég alltaf að fara í aðgerð að láta fjarlægja það. Þetta inngrip aftur og aftur, hvaða áhrif hefur þetta? Óléttuhormónin keyrast upp og svo bara hraða þau niður þegar þú missir. Þarna verður rosalegt rof á milli tveggja einstaklinga sem eru að missa það sama en samtímis að ganga í gegnum mjög ólíka reynslu. Þetta kemur svolítið skýrt fram í bókinni líka. 

Maðurinn minn er í bakgrunni í verkinu, bæði er ég svolítið að verja hann með því að vera ekki að skrifa um hann og hans tilfinningar en það er líka gert til að leggja áherslu á hversu einmanaleg þessi reynsla getur verið. Það er svo margt sem ég gat ekki útskýrt fyrir honum.“

Sömuleiðis sé það langt í frá þannig að einstaklingur byrji á núllpunkti eftir svona aðgerð.

„Þú ert ekkert söm eftir hvert skipti sem þú missir og það hleðst ofan á trámað. Þetta er tilfinningalegt, líkamlegt, sálarlegt og dularfullt. Ég er búin að vera með mjóbaksverk sem kom upp úr þessu og það komu tímabil þar sem ég gat lítið hreyft mig. Ég hafði ekki orkuna, upplifði doða og þunglyndi.“

Mikilvægt að vinna úr tráma í líkamanum líka

Sem dansari og danshöfundur hefur Margrét ýmsar leiðir til að vinna úr áföllum í líkamanum en hún segir kannski það flóknasta að gefa sér tíma í það.

„Eins og fram kemur í bókinni þá fer ég til sálgreinis vikulega þar sem ég get talað og tjáð mig og það hefur reynst mér mjög vel. Ég hef stundum gleymt því að líkaminn þarf líka að losa, það eru alls kyns leiðir til þess en maður verður að muna að gera það. Ég held að sérstaklega eftir svona reynslu sé mjög margt sem líkaminn þarf að leysa úr og hann getur að miklu leyti gert það sjálfur, maður þarf bara að gefa honum rými til þess.

Þegar ég kemst í stúdíó, sem ég gef sjálfri mér alls ekki nógu oft, þá nota ég mikið líkamlega hugleiðslu. Það er spunaæfing þar sem maður er með lokuð augun og hreyfir sig nákvæmlega eins og líkaminn vill hreyfa sig. Þú þarft að hafa aðra manneskju með þér sem er vitni og þetta er æfing sem ég trúi ótrúlega mikið á. Þú ferð inn á eitthvað algjört frumplan, út úr hausnum og inn í líkamann. Mér finnst þetta rosalega gott og þetta er einhvers konar úrvinnsla.“

Tengdi aftur við sköpunarkraftinn

Líf Margrétar hefur fengið nýtt súrefni á undanförnum vikum eftir átakanleg ár þar sem hún týndi sjálfri sér. Fegurð í hversdagsleikanum og tilhlökkun eru komin aftur inn í hennar líf.

„Ég hafði aldrei upplifað tilfinningar á borð við tilgangsleysi og þunglyndi fram að þessu. Auðvitað hafði ég gengið í gegnum erfiða kafla í lífinu en skynjaði þá alltaf sem kafla og sá alltaf ljósið við endann.

Á tímabili missti ég í fyrsta skipti á ævinni sjónar á tilganginum og það er rosalega óhugnanlegur staður að vera á.

Mér fannst ég fá innsýn inn í eitthvað sem sumir eru að glíma við á löngum tímabilum.“

Þessi slæmi staður var Margréti mjög framandi.

Margrét fann sjálfa sig og tilgang aftur eftir skrifin.Vísir/Anton

„Núna líður mér mun betur og auðvitað hefur listin hjálpað mér. Þegar maður starfar sem listamaður þá er sköpunin og sá kraftur svo mikill tilgangur í lífi manns sem ég missti á tímabili. Þessi skrif voru mín leið til að tengja aftur við sköpunarkraftinn án þess að ég áttaði mig endilega á því.

Ég sló óvænt tvær flugur í einu höggi, að vinna líka að bataferli í gegnum sköpunina og sjá einhvern tilgang þar. Þetta er búið að leiða mig á þennan óvænta stað, að gefa út þessa bók.“

Stundum miklu meira en nóg að þrauka

Margrét hefur alltaf trúað á kraftinn sem fylgir berskjöldun og ómeðvitað hefur hún verið rauður þráður í hennar list þvert á miðla.

„Útskriftarverkið mitt í danshöfundanáminu í Hollandi hét Strength through embarrassment, eða styrkur í gegnum hið vandræðalega. Það gæti í raun verið undirtitill á öllum mínum verkum, þótt það snúist ekki alltaf um hið vandræðalega þá snýst það um að öðlast styrk í gegnum einhverjar hindranir eða takmarkanir.

Til dæmis að fara í gegnum sorg og sársauka og koma út á hinum endanum með eitthvað sem er einhvers virði, sem einhver styrkur liggur í. Þessi undirtitill er ekki meðvitaður hjá mér en hann á bara svo oft við.

Svo ég ítreki það þá skil ég svo vel að geta ekki ímyndað sér að vinna með reynslu eins og þessa sem ég ræði í bókinni og í mörg ár sá ég aldrei fyrir mér að gera það. Mig langaði ekki neitt að vinna með þetta sem efnivið, mér fannst tilhugsunin ekki neitt spennandi.

Ég var bara að reyna að lifa þetta af og gat ekki hugsað út í það að setja það í samhengi við listina. Stundum er miklu meira en nóg að þrauka.

Að sama skapi er ég núna mjög þakklát fyrir þetta verkfæri sem ég hef, mér finnst þetta ótrúlega mikils virði og mér finnst ég lánsöm að hafa þennan farveg. Ég hef hugsað mikið um það.“

Óplægður akur og margar sögur ósagðar

Það er sömuleiðis verðmætt fyrir Margréti að leyfa rithöfundadrauminum að blómstra.

„Ég útskrifaðist úr MR árið 2001 og þar lásum við bara bækur eftir karla, nema kannski einstaka ljóð eftir konu og eina bók í dönsku. Ég las líka bara bækur eftir karla í frítíma mínum og umhverfið á Íslandi á þeim tíma einkenndist mjög af því að rithöfundar voru í miklum meirihluta karlar.

Ég held hreinlega að ég hafi verið með smá fordóma, lúmska og ómeðvitaða og sótti aðallega í bækur eftir karla en fann að sama skapi að það var einhver vídd innra með mér sem var ekki nærð. Ég bara gat ekki sett fingurinn á það, hvað það væri. Ég var svo gegnsýrð af karllægu sjónarhorni í gegnum bækurnar sem ég las og fannst ekkert athugavert við það á þeim tíma. Mig langaði til að skrifa en vantaði kannski fyrirmyndir sem skrifuðu bækur í þeim anda sem ég vildi skrifa.

Á endanum fór ég í aðra átt, kannski að miklu leyti því mig skorti hugrekkið. Svo breyttist þetta fljótlega eftir aldamótin og við tók fjölbreyttari flóra bóka eftir konur.

Karlmaður gæti ekki skrifað bók um þetta efni og þessa reynslu á sama hátt og kona og kannski þess vegna sem það er ekki svo mikið til. Þetta er enn svolítið óplægður akur og það er mjög merkilegt, ef maður pælir í því, eftir öll þessi ár og aldir. Það er ýmislegt sem á eftir að skrifa um,“ segir Margrét að lokum og veitir mögulega einhverjum sem þetta les innblástur til að koma fram með nýjar og óskrifaðar sögur.

#borið #finnst #geta #hún #loksins


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262945146d/finnst-hun-loksins-geta-borid-hofud-hatt-a-ny

📰 Aðrar fréttir

„Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður segir gervigreind geta drepið sköpunarkraftinn
📅 10.10.2026 👁️ 1
„Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður segir gervigreind geta drepið sköpunarkraftinn
Tónlistarframleiðandinn Þormóður Eiríksson segir að gervigreind eigi eftir að gjörbreyta tónlistarbransanum og telur líklegt að margir tónlistarframle...
Dóra Sif Tynes: Það er engin undanþága frá bókun 35 – við verðum að innleiða hana rétt
📅 10.10.2026 👁️ 2
Dóra Sif Tynes: Það er engin undanþága frá bókun 35 – við verðum að innleiða hana rétt
Á meðan við ekki innleiðum bókun 35 með réttum hætti verða íslenskir borgarar fyrir réttindamissi og
Biobú tekur mjólkurverðshækkunina á sig
📅 10.10.2026 👁️ 2
Biobú tekur mjólkurverðshækkunina á sig
Biobú hefur ákveðið að hækka ekki verð á vörum sínum þrátt fyrir nýlega hækkun á innkaupsverði mjólkur. Innkaupsverð á mjólk til Biobús hækkaði um 1,4...
Vikulokin: Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ
📅 10.10.2026 👁️ 2
Vikulokin: Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ
Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag.Ingvar Þór Bj...
Ukraine war: Russian glide bomb attack on Zaporizhzhia kills at least 15 people
📅 10.10.2026 👁️ 1
Ukraine war: Russian glide bomb attack on Zaporizhzhia kills at least 15 people
Children are among the victims, authorities say, and more victims could still be buried in the rubble of a large apartment block that was destroyed.
Hvað er í brókum þjóðkirkjunnar?
📅 10.10.2026 👁️ 1
Hvað er í brókum þjóðkirkjunnar?
Hvað er í brókum þjóðkirkjunnar? Throstur10. október 2026Aðsend grein, Þröstur JónssonLeave a Comment Röndótt brók Ég rita þetta bréf til þeirrar „her...
Rogue Anthropic AI agent gave police fake tip in unsolved murder case
📅 10.10.2026 👁️ 1
Rogue Anthropic AI agent gave police fake tip in unsolved murder case
Philadelphia police said the tip was "flagged as spam", but criticised the tech company for taking more than two months to detect and report the breac...
Megan opnar áskriftarvef með sjóðheitum myndum „sem þú munt ekki sjá neins staðar annars staðar“
📅 10.10.2026 👁️ 2
Megan opnar áskriftarvef með sjóðheitum myndum „sem þú munt ekki sjá neins staðar annars staðar“
Leikkonan Megan Fox bregst ekki aðdáendum sínum, á föstudag opnaði hún sinn eigin áskriftarvef á Subs.com og lofaði „myndböndum, myndum og færslum sem...
Guð­laugur Þór villtist inn í mynd­ver - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 2
Guð­laugur Þór villtist inn í mynd­ver - Vísir
Atvikið og þáttinn í heild sinni má berja augum í spilaranum hér að neðan. Í þættinum var ýmislegt tekið fyrir en þar má til dæmis nefna kjördæmavikur...
Viðtal við forstjóra Fotoware: Það er hægt að viðhalda trausti á fréttaljósmyndum
📅 10.10.2026 👁️ 2
Viðtal við forstjóra Fotoware: Það er hægt að viðhalda trausti á fréttaljósmyndum
Á næsta ári fagnar heimsins elsta ljósmynd 200 ára afmæli sínu. Með tilkomu snjallsímanna höfum við lifað með þeirri möntru að það gerðist ekki nema þ...
Endurnýttar tölvur nær fjórðungur af tölvusölu hjá OK
📅 10.10.2026 👁️ 2
Endurnýttar tölvur nær fjórðungur af tölvusölu hjá OK
Íslensk fyrirtæki kaupa endurnýttan tölvubúnað í mun meira mæli en áður. Á þessu ári hafa nær 25% allra tölva sem seldar hafa verið í netverslun OK ve...
Sýknaðir í Lindargötudeilu við Albert og Bergþór en greiða 1,3 milljónir
📅 10.10.2026 👁️ 2
Sýknaðir í Lindargötudeilu við Albert og Bergþór en greiða 1,3 milljónir
Augustin Dufatanye og félagið NZOZI ehf. voru sýknuð af kröfum Alberts Eiríkssonar, Bergþórs Pálssonar og tveggja annarra eigenda íbúða að Lindargötu ...
Green Party wants to make sure it is 'not vulnerable to extremists'
📅 10.10.2026 👁️ 2
Green Party wants to make sure it is 'not vulnerable to extremists'
The party's Westminster leader Ellie Chowns made the comments after ex-leader Caroline Lucas said some members had joined to vote in the Zionism motio...
Þúsundum gert að yfir­gefa heimili sín vegna Isaias - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 2
Þúsundum gert að yfir­gefa heimili sín vegna Isaias - Vísir
Í umfjöllun bandarísku fréttastöðvarinnar CBS kemur fram að Isaias gangi nú enn yfir suðausturhluta Bandaríkjanna en að hann hafi nú verið lækkaður um...
Þyrlulaus í nokkrar klukku­stundir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 2
Þyrlulaus í nokkrar klukku­stundir - Vísir
Landhelgisgæslan hefur fjórar þyrlur en að sögn Ásgeirs Erlendssonar sem Morgunblaðið ræddi við er ein þeirra alla jafna í langtímaviðhaldi. Almennt e...
Landhelgisgæslan þyrlulaus í nokkrar klukkustundir
📅 10.10.2026 👁️ 2
Landhelgisgæslan þyrlulaus í nokkrar klukkustundir
Engin af þyrlum Landhelgisgæslunnar var til taks í vikunni þegar bilun kom upp í einu tiltæku þyrlunni.Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag sem h...
Palantir AI probe leads to Met Police volunteer chief's dismissal
📅 10.10.2026 👁️ 1
Palantir AI probe leads to Met Police volunteer chief's dismissal
Special chief officer James Deller copied intimate images on to his work phone, AI monitoring finds.
Hefur Smáralindin ekki alltaf verið þarna?
📅 10.10.2026 👁️ 2
Hefur Smáralindin ekki alltaf verið þarna?
Hesthús og græn tún blasa við á fréttamyndum af framkvæmdum sem voru að hefjast í Kópavogi um aldamótin. Á Reykjanesbraut má sjá tvær akreinar en ekki...
Átakalínur: Hvað eru ólögleg peptíð og hvers vegna eru þau úti um allt?
📅 10.10.2026 👁️ 3
Átakalínur: Hvað eru ólögleg peptíð og hvers vegna eru þau úti um allt?
Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið og er auðvelt að verða sér út um þá í gegnum samfélagsmiðla. Mismunandi tegundir eru...
„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
📅 10.10.2026 👁️ 1
„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“
„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“ Heiðdís Rósa og Óðinn SvanHeiðdís Rósa opnar sig um erfið veikindi Mynd: Facebook Hei...
Banda­ríkin fjár­festi í stríðs­rekstri Pútíns - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Banda­ríkin fjár­festi í stríðs­rekstri Pútíns - Vísir
Trump tilkynnti um samkomulagið á samfélagsmiðli sínum Truth Social á föstudag. Þar sagði hann Pútín hafa samþykkt að setja þegar í stað þrjú hundruð ...
Slagur um skóla og skuldabréf í Frakklandi
📅 10.10.2026 👁️ 3
Slagur um skóla og skuldabréf í Frakklandi
Það má segja að frönsk stjórnvöld og franskir stjórnmálamenn séu milli steins og sleggju þessa dagana. Annars vegar eru það víðtæk mótmæli, sem hófust...
Grætur enn að hafa misst af sím­talinu - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 2
Grætur enn að hafa misst af sím­talinu - Vísir
Þetta segir Ragnhildur Vala Johnsdóttir þegar hún rifjar upp síðasta samtalið sem hún átti við föður sinn, fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson,...
Hæg breytileg átt og skúrir milli veðrakerfa
📅 10.10.2026 👁️ 3
Hæg breytileg átt og skúrir milli veðrakerfa
Von er á hægri breytilegri átt og dálitlum skúrum í flestum landshlutum í dag en á morgun nálgast landið lægð og bætir í vind og úrkomu annað kvöld. Þ...
Historic Tenerife hotel to be demolished next week
📅 10.10.2026 👁️ 3
Historic Tenerife hotel to be demolished next week
Demolition work on the historic Tenerife Tour hotel in Las Caletillas is scheduled to begin on Tuesday (13th October), bringing an end to one of the i...
Segjast geta hafið fram­kvæmdir á morgun - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Segjast geta hafið fram­kvæmdir á morgun - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá söfnuðinum vegna ákvörðunar borgarráðs frá 8. október og greint var frá í gærmorgun um að afturkalla úthlutun lóðar...
Milt og blautt í dag - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Milt og blautt í dag - Vísir
Þetta segir veðurfræðingur á Veðurstofunni í daglegri hugleiðingu sinni. Að hans sögn er vaxandi lægð skammt vestur af Hvarfi, syðsta oddi Grænlands, ...
Five Canary Islands on pre-alert for rain as Bank Holiday weekend begins
📅 10.10.2026 👁️ 3
Five Canary Islands on pre-alert for rain as Bank Holiday weekend begins
Five Canary Islands are under a government pre-alert for rain as the Bank Holiday weekend begins, with forecasters warning of locally heavy showers an...
Endur­heimti til­ganginn í erfiðu bataferli - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Endur­heimti til­ganginn í erfiðu bataferli - Vísir
Margrét Bjarnadóttir er fædd árið 1981, býr í Vesturbænum og er listamaður í orðsins fyllstu merkingu. Sköpunargleði hennar nær langt út fyrir afmarka...
Óttar Guðmundsson skrifar: Þjóðarvakning
📅 10.10.2026 👁️ 4
Óttar Guðmundsson skrifar: Þjóðarvakning
Mynd Jónas Hallgrímsson er óumdeilt þjóðskáld Íslendinga.
Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður
Einmanaleiki hefur aukist undanfarna áratugi. Hann hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.Að jafnaði upplifa 36% þjóðarinnar si...
Réttindalaus ökumaður ók á hjól með þremur börnum og flúði – VÍS þarf að bæta tjón stúlku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Réttindalaus ökumaður ók á hjól með þremur börnum og flúði – VÍS þarf að bæta tjón stúlku
Landsréttur hefur staðfest fulla og ótakmarkaða bótaskyldu VÍS trygginga vegna líkamstjóns 13 ára stúlku sem var farþegi á breyttu léttbifhjóli þegar ...
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
📅 10.10.2026 👁️ 4
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna Rom­an Yampolskiy met­ur lík­urn­ar á að gervi­greind út­rými mann­kyn­inu 99,999999 pró­sent. Sif Sig­m...
Mikill viðbúnaður yfirvalda vegna fyrirhugaðra mótmæla
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mikill viðbúnaður yfirvalda vegna fyrirhugaðra mótmæla
Indverska kakkalakkahreyfingin Janata hefur boðað til fjöldamótmæla í Delhi, höfuðborg Indlands, í dag til að krefjast endurbóta á kosningum og afsagn...
What's On across the Canary Islands this Bank Holiday weekend
📅 10.10.2026 👁️ 4
What's On across the Canary Islands this Bank Holiday weekend
The Canary Islands are preparing for a busy Bank Holiday weekend, with concerts, festivals, traditional celebrations, sporting competitions and family...
Frétta­tía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Public executions in the US stopped nearly a century ago - why are they resuming now?
📅 10.10.2026 👁️ 3
Public executions in the US stopped nearly a century ago - why are they resuming now?
The Pentagon says the execution of Fort Hood shooter Nidal Hasan will be livestreamed, but experts suggest officials are reading the country wrong.
What happens when you grow up not knowing your family medical history?
📅 10.10.2026 👁️ 3
What happens when you grow up not knowing your family medical history?
People who have been adopted or are in care sometimes struggle to access family medical history which could be crucial to their own health.
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
📅 10.10.2026 👁️ 4
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
In BBC documentary The Book That Changed My Life, the Queen speaks about memorable moments in her own reading.
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
📅 10.10.2026 👁️ 4
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
After four years, a Ukrainian man is set to stand trial in Hamburg accused of sabotaging the Nord Stream pipelines.
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Flórída, Alabama og Georgíu í Bandaríkjunum vegna fellibylsins Isaias sem nú gengur yfir. Veðurfræðingar vara vi...
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
📅 10.10.2026 👁️ 4
Flydubai attacker began drifting towards extremism in Australia, UAE says
The United Arab Emirates' attorney-general also alleges the co-pilot was trying to crash the plane into Tel Aviv's airport.
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
📅 10.10.2026 👁️ 4
Friðarsúla Yoko Ono tendruð í tuttugasta sinn
Friðarsúla Yoko Ono var tendruð í tuttugasta sinn í Viðey í gærkvöld og var friðsæl athöfn haldin í Viðey af því tilefni. Tónlistarkonan Árný Margrét ...
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 4
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 5
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
France's school protests are about more than broken classrooms
📅 09.10.2026 👁️ 3
France's school protests are about more than broken classrooms
Students taking to the streets in France have become a focal point in the country's increasingly polarised politics.
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 5
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 5
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
How Ashe's real life inspired her TikTok hit Stop The Wedding
📅 09.10.2026 👁️ 3
How Ashe's real life inspired her TikTok hit Stop The Wedding
US singer-songwriter Ashe reveals the story behind her international smash hit, Stop The Wedding.