Atvikið og þáttinn í heild sinni má berja augum í spilaranum hér að neðan.
Í þættinum var ýmislegt tekið fyrir en þar má til dæmis nefna kjördæmavikur þingmanna en þá fara ekki fram hefðbundnir þingfundir og heimsækja þingmenn kjördæmi sín. Þeir fara þá gjarnan í heimsókn í hin ýmsu fyrirtæki og taka myndir af sér um allar koppagrundir með hárnet. Síðan fyllast samfélagsmiðlar af myndum héðan og þaðan.
Einnig var snert á kraftgöngu Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, fyrir utan MR, 60 ára afmæli Ríkisútvarpsins, heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og erjum meðal áhrifavalda og innan Ungfrúar Íslands.
Einnig var sjónum beint að viðvörunum Borgarleikhússins sem hafa vakið kátínu víða en þar kemur til dæmis fram að tiltekin sýning sé ekki fyrir fólk með hálsríg.
Þáttinn má eins og áður segir sjá í spilaranum hér að ofan.