Biobú hefur ákveðið að hækka ekki verð á vörum sínum þrátt fyrir nýlega hækkun á innkaupsverði mjólkur. Innkaupsverð á mjólk til Biobús hækkaði um 1,4% í september. Fyrirtækið hefur ákveðið að taka hækkunina á sig að svo stöddu og halda verði til viðskiptavina óbreyttu, eins og segir í fréttatilkynningu.
Biobú tekur mjólkurverðshækkunina á sig