„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er núna“

Heiðdís Rósa og Óðinn Svan
Heiðdís Rósa og Óðinn SvanHeiðdís Rósa opnar sig um erfið veikindi
Mynd: Facebook

Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir greindist með stórt heilaæxli fyrir ári síðan og gekkst undir tíu klukkustunda heilaskurðaðgerð. Í einlægri færslu á Facebook rifjar hún upp óvissuna, meðferðina og erfiðustu stundirnar, en segist jafnframt hafa lært að lífið sé núna.

Heiðdís Rósa Sigurjónsdóttir, innkaupastjóri Kjarnafæði Norðlenska, segir frá reynslu sinni af því að greinast með heilaæxli fyrir ári síðan í færslu á Facebook. Þar lýsir hún því hvernig grunur um veikindi hennar vaknaði löngu áður en greiningin lá fyrir, hvernig hún tók fréttunum og þeim áhrifum sem krabbameinsmeðferðin hefur haft á líf hennar.

Í október 2024 leitaði Heiðdís í tvígang til læknis vegna óvenjulegra tilfinninga í líkamanum. Eftir á komst hún að því að um flog hafði verið að ræða. Að hennar sögn voru einkennin þá skýrð með kvíða og streitu.

Hún fór í segulómun 22. september 2025 en hafði ekki fengið niðurstöðurnar þegar hún hafði samband við heilbrigðisþjónustuna 6. október og óskaði eftir upplýsingum.

Daginn eftir fékk hún skilaboð um að mæta í viðtal vegna niðurstaðnanna. Morguninn eftir var henni síðan sagt að taka aðstandanda með sér.

„Þá hugsaði ég: nei, nú er þetta búið, ég er dauðvona,“ skrifar Heiðdís.

Þegar hún mætti í viðtalið með eiginmanni sínum, Óðni Svan Óðinssonar, var henni sagt að stórt æxli væri hægra megin í heilanum.

Æxlið hafði sést á myndum frá 2017

Í færslunni segir Heiðdís að læknarnir hafi spurt hana hversu lengi hún hefði fundið fyrir einkennunum. Hún hafi þá viljað fá niðurstöðurnar strax. Síðar hafi komið í ljós að æxlið sæist á eldri myndum frá árinu 2017, en það hefði þá farið fram hjá röntgenlækni.

Heiðdís segir að greiningin hafi verið bæði raunveruleg og óraunveruleg í senn. Hún hafi þó strax hugsað um börnin sín þrjú og eiginmanninn.

„Ég VERÐ að vinna þetta, ég get ekki farið frá þeim,“ skrifar hún og lýsir því hvernig hún óttaðist tilhugsunina um að börnin hennar þyrftu að alast upp án móður sinnar.

Hún segir að hún hafi ekki grátið mikið vegna eigin veikinda, en tárin hafi komið þegar hún hugsaði um börnin eða sá að þeim leið illa.

Tíu klukkustunda aðgerð og meðferð í kjölfarið

Heiðdís gekkst undir tíu klukkustunda heilaskurðaðgerð þar sem æxlið var fjarlægt. Fimm dögum síðar hélt hún heim til Akureyrar sem farþegi í bíl.

Hún lýsir miklu þakklæti til heilaskurðlæknisins sem annaðist hana og segir hann hafa verið einstaklega rólegan, kláran og færan í samskiptum.

Í kjölfar aðgerðarinnar tók við geisla- og lyfjameðferð. Heiðdís segist hafa haldið að lyfjameðferðin yrði tiltölulega auðveld þar sem hún tæki lyfin í töfluformi heima, en reynslan hafi verið allt önnur.

„Lyfjameðferð er ERFIÐ, tekur fáránlega mikið á líkamlega OG andlega,“ skrifar hún.

Hún segir að þótt hún sé þakklát fyrir að vera á lífi upplifi hún einnig sorg yfir því að hafa misst fyrra þrek og þurfa að takast á við breytt útlit og líf sem sjúklingur.

„Ég skoða oft myndir frá því áður en ég greindist og hugsa: oh, ég vildi óska að ég væri þarna ennþá og myndi ekkert vita,“ segir hún.

Lærði að lífið er núna

Greiningin varð einnig til þess að Heiðdís fór að hugsa öðruvísi um lífið og tímann með fjölskyldunni.

Í upphafi lyfjameðferðar pantaði hún tvær utanlandsferðir, sem hún segir að eiginmaður hennar hafi kallað heimsreisur. Hún hafði lengi dreymt um að fara til Grikklands og segir mikilvægt að skapa góðar minningar með fjölskyldunni.

Hún fór einnig í ferð til Nice með vinkonu sinni, Sunnevu.

„Eftir að hafa greinst með krabbamein lærði ég að lífið er NÚNA,“ skrifar hún.

Erfitt að horfa á soninn þjást

Þrátt fyrir erfiðleikana við eigin veikindi segir Heiðdís að það hafi verið einna erfiðast að horfa upp á elsta son sinn, Berg Loga, þjást af miklum bakverkjum eftir tvær aðgerðir.

Níu mánuðum eftir fyrstu aðgerðina sé hann enn með mikla verki og nú sé skrúfa eða nagli í mjöðm hans farinn að valda honum óþægindum. Fjölskyldan bíði nú eftir svörum frá bæklunarlæknum um hvernig megi hjálpa honum.

„Að horfa á hann kvalinn, ósofinn og geta lítið sem ekkert gert er vægast sagt HRÆÐILEGT,“ skrifar Heiðdís.

Hún segist óska þess að hún gæti tekið þjáningarnar af honum.

#eftir #greinst #hafa #krabbamein #með

Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/eftir-ad-hafa-greinst-med-krabbamein-laerdi-eg-ad-lifid-er-nuna/

📰 Aðrar fréttir

Tilkynnt um eld í bíl við Straumsvík
📅 10.10.2026 👁️ 0
Tilkynnt um eld í bíl við Straumsvík
Eldur kviknaði í bíl við álverið í Straumsvík fyrir skömmu. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur sent þrjá bíla á vettvang. Samvkæmt fréttamanni á ve...
Vala sagði ein­fald­lega „fokk jú“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 0
Vala sagði ein­fald­lega „fokk jú“ - Vísir
Þá var haldið upp á fjörutíu ára afmæli sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar sem áður hét Stöð 2. Sindri var ánægður með sófann sem boðið var upp á þar sem han...
Digger grefur gröf Warner-bræðra
📅 10.10.2026 👁️ 0
Digger grefur gröf Warner-bræðra
Digger grefur gröf Warner-bræðra Eng­inn sem hef­ur áhuga á kvik­mynd­um ætti að láta Dig­ger fram hjá sér fara, þó að gagn­rýn­end­ur lýsi henni sem ...
Á­fall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögu­legt af­mæli - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 0
Á­fall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögu­legt af­mæli - Vísir
Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um málið og rætt við Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing sem segir ákvörðun Trump enn eitt ...
Trump semur við Pútín um rússneska dísilolíu – nýjar upplýsingar um ástæður samkomulagsins
📅 10.10.2026 👁️ 0
Trump semur við Pútín um rússneska dísilolíu – nýjar upplýsingar um ástæður samkomulagsins
Trump semur við Pútín um rússneska dísilolíu – nýjar upplýsingar um ástæður samkomulagsins Fréttin10. október 2026ErlentLeave a Comment Vladímír Pútín...
Hundrað tonna bor fluttur í Laugardal
📅 10.10.2026 👁️ 0
Hundrað tonna bor fluttur í Laugardal
Hundrað tonna bor verður fluttur frá Hellisheiði að Engjateig í Laugardal í dag. Þar hefst borun eftir heitu vatni í næstu viku. Í tilkynningu frá Vei...
Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 0
Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum - Vísir
Sveppi sagði söguna í nýjasta þætti hlaðvarpsins Beint í bílinn. Hann hafi fyrst haldið að um grín væri að ræða þegar lögreglumaður kynnti sig í síman...
Kjósa varaformann í dag
📅 10.10.2026 👁️ 0
Kjósa varaformann í dag
Nýr varaformaður Samfylkingarinnar verður kjörinn á flokkstjórnarfundi sem haldinn er í Sandgerði í dag. Guðmundur Árni Stefánsson gefur ekki kost á s...
„Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður segir gervigreind geta drepið sköpunarkraftinn
📅 10.10.2026 👁️ 2
„Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður segir gervigreind geta drepið sköpunarkraftinn
Tónlistarframleiðandinn Þormóður Eiríksson segir að gervigreind eigi eftir að gjörbreyta tónlistarbransanum og telur líklegt að margir tónlistarframle...
Dóra Sif Tynes: Það er engin undanþága frá bókun 35 – við verðum að innleiða hana rétt
📅 10.10.2026 👁️ 2
Dóra Sif Tynes: Það er engin undanþága frá bókun 35 – við verðum að innleiða hana rétt
Á meðan við ekki innleiðum bókun 35 með réttum hætti verða íslenskir borgarar fyrir réttindamissi og
Biobú tekur mjólkurverðshækkunina á sig
📅 10.10.2026 👁️ 2
Biobú tekur mjólkurverðshækkunina á sig
Biobú hefur ákveðið að hækka ekki verð á vörum sínum þrátt fyrir nýlega hækkun á innkaupsverði mjólkur. Innkaupsverð á mjólk til Biobús hækkaði um 1,4...
Vikulokin: Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ
📅 10.10.2026 👁️ 2
Vikulokin: Kjarasamningar, leigubremsa og forsetaslagur ASÍ
Kjarasamningar, staðan á vinnumarkaði, leigubremsa, forsetakjör ASÍ, heimsókn Marco Rubio og fleira verða til umræðu í Vikulokunum í dag.Ingvar Þór Bj...
Grenjaði aftur eins og smá­barn þrjá­tíu árum seinna - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 0
Grenjaði aftur eins og smá­barn þrjá­tíu árum seinna - Vísir
Benedikt Erlingsson lék eiginmann sem bar sig illa og Helga Braga eiginkonuna Veru Dögg sem gaf sig ekki, fyrr en að lokum. Í gærkvöldi var sérstakur ...
Ukraine war: Russian glide bomb attack on Zaporizhzhia kills at least 15 people
📅 10.10.2026 👁️ 1
Ukraine war: Russian glide bomb attack on Zaporizhzhia kills at least 15 people
Children are among the victims, authorities say, and more victims could still be buried in the rubble of a large apartment block that was destroyed.
Hvað er í brókum þjóðkirkjunnar?
📅 10.10.2026 👁️ 2
Hvað er í brókum þjóðkirkjunnar?
Hvað er í brókum þjóðkirkjunnar? Throstur10. október 2026Aðsend grein, Þröstur JónssonLeave a Comment Röndótt brók Ég rita þetta bréf til þeirrar „her...
Rogue Anthropic AI agent gave police fake tip in unsolved murder case
📅 10.10.2026 👁️ 2
Rogue Anthropic AI agent gave police fake tip in unsolved murder case
Philadelphia police said the tip was "flagged as spam", but criticised the tech company for taking more than two months to detect and report the breac...
Megan opnar áskriftarvef með sjóðheitum myndum „sem þú munt ekki sjá neins staðar annars staðar“
📅 10.10.2026 👁️ 3
Megan opnar áskriftarvef með sjóðheitum myndum „sem þú munt ekki sjá neins staðar annars staðar“
Leikkonan Megan Fox bregst ekki aðdáendum sínum, á föstudag opnaði hún sinn eigin áskriftarvef á Subs.com og lofaði „myndböndum, myndum og færslum sem...
Guð­laugur Þór villtist inn í mynd­ver - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Guð­laugur Þór villtist inn í mynd­ver - Vísir
Atvikið og þáttinn í heild sinni má berja augum í spilaranum hér að neðan. Í þættinum var ýmislegt tekið fyrir en þar má til dæmis nefna kjördæmavikur...
Viðtal við forstjóra Fotoware: Það er hægt að viðhalda trausti á fréttaljósmyndum
📅 10.10.2026 👁️ 3
Viðtal við forstjóra Fotoware: Það er hægt að viðhalda trausti á fréttaljósmyndum
Á næsta ári fagnar heimsins elsta ljósmynd 200 ára afmæli sínu. Með tilkomu snjallsímanna höfum við lifað með þeirri möntru að það gerðist ekki nema þ...
Endurnýttar tölvur nær fjórðungur af tölvusölu hjá OK
📅 10.10.2026 👁️ 3
Endurnýttar tölvur nær fjórðungur af tölvusölu hjá OK
Íslensk fyrirtæki kaupa endurnýttan tölvubúnað í mun meira mæli en áður. Á þessu ári hafa nær 25% allra tölva sem seldar hafa verið í netverslun OK ve...
Sýknaðir í Lindargötudeilu við Albert og Bergþór en greiða 1,3 milljónir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Sýknaðir í Lindargötudeilu við Albert og Bergþór en greiða 1,3 milljónir
Augustin Dufatanye og félagið NZOZI ehf. voru sýknuð af kröfum Alberts Eiríkssonar, Bergþórs Pálssonar og tveggja annarra eigenda íbúða að Lindargötu ...
Green Party wants to make sure it is 'not vulnerable to extremists'
📅 10.10.2026 👁️ 3
Green Party wants to make sure it is 'not vulnerable to extremists'
The party's Westminster leader Ellie Chowns made the comments after ex-leader Caroline Lucas said some members had joined to vote in the Zionism motio...
Þúsundum gert að yfir­gefa heimili sín vegna Isaias - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Þúsundum gert að yfir­gefa heimili sín vegna Isaias - Vísir
Í umfjöllun bandarísku fréttastöðvarinnar CBS kemur fram að Isaias gangi nú enn yfir suðausturhluta Bandaríkjanna en að hann hafi nú verið lækkaður um...
Þyrlulaus í nokkrar klukku­stundir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Þyrlulaus í nokkrar klukku­stundir - Vísir
Landhelgisgæslan hefur fjórar þyrlur en að sögn Ásgeirs Erlendssonar sem Morgunblaðið ræddi við er ein þeirra alla jafna í langtímaviðhaldi. Almennt e...
Landhelgisgæslan þyrlulaus í nokkrar klukkustundir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Landhelgisgæslan þyrlulaus í nokkrar klukkustundir
Engin af þyrlum Landhelgisgæslunnar var til taks í vikunni þegar bilun kom upp í einu tiltæku þyrlunni.Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag sem h...
Palantir AI probe leads to Met Police volunteer chief's dismissal
📅 10.10.2026 👁️ 1
Palantir AI probe leads to Met Police volunteer chief's dismissal
Special chief officer James Deller copied intimate images on to his work phone, AI monitoring finds.
Hefur Smáralindin ekki alltaf verið þarna?
📅 10.10.2026 👁️ 3
Hefur Smáralindin ekki alltaf verið þarna?
Hesthús og græn tún blasa við á fréttamyndum af framkvæmdum sem voru að hefjast í Kópavogi um aldamótin. Á Reykjanesbraut má sjá tvær akreinar en ekki...
Átakalínur: Hvað eru ólögleg peptíð og hvers vegna eru þau úti um allt?
📅 10.10.2026 👁️ 3
Átakalínur: Hvað eru ólögleg peptíð og hvers vegna eru þau úti um allt?
Notkun ólöglegra peptíða hefur sprungið út á Íslandi síðasta árið og er auðvelt að verða sér út um þá í gegnum samfélagsmiðla. Mismunandi tegundir eru...
Banda­ríkin fjár­festi í stríðs­rekstri Pútíns - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Banda­ríkin fjár­festi í stríðs­rekstri Pútíns - Vísir
Trump tilkynnti um samkomulagið á samfélagsmiðli sínum Truth Social á föstudag. Þar sagði hann Pútín hafa samþykkt að setja þegar í stað þrjú hundruð ...
Slagur um skóla og skuldabréf í Frakklandi
📅 10.10.2026 👁️ 3
Slagur um skóla og skuldabréf í Frakklandi
Það má segja að frönsk stjórnvöld og franskir stjórnmálamenn séu milli steins og sleggju þessa dagana. Annars vegar eru það víðtæk mótmæli, sem hófust...
Grætur enn að hafa misst af sím­talinu - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Grætur enn að hafa misst af sím­talinu - Vísir
Þetta segir Ragnhildur Vala Johnsdóttir þegar hún rifjar upp síðasta samtalið sem hún átti við föður sinn, fjallgöngumanninn John Snorra Sigurjónsson,...
Hæg breytileg átt og skúrir milli veðrakerfa
📅 10.10.2026 👁️ 3
Hæg breytileg átt og skúrir milli veðrakerfa
Von er á hægri breytilegri átt og dálitlum skúrum í flestum landshlutum í dag en á morgun nálgast landið lægð og bætir í vind og úrkomu annað kvöld. Þ...
Historic Tenerife hotel to be demolished next week
📅 10.10.2026 👁️ 3
Historic Tenerife hotel to be demolished next week
Demolition work on the historic Tenerife Tour hotel in Las Caletillas is scheduled to begin on Tuesday (13th October), bringing an end to one of the i...
Segjast geta hafið fram­kvæmdir á morgun - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Segjast geta hafið fram­kvæmdir á morgun - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá söfnuðinum vegna ákvörðunar borgarráðs frá 8. október og greint var frá í gærmorgun um að afturkalla úthlutun lóðar...
Milt og blautt í dag - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Milt og blautt í dag - Vísir
Þetta segir veðurfræðingur á Veðurstofunni í daglegri hugleiðingu sinni. Að hans sögn er vaxandi lægð skammt vestur af Hvarfi, syðsta oddi Grænlands, ...
Five Canary Islands on pre-alert for rain as Bank Holiday weekend begins
📅 10.10.2026 👁️ 3
Five Canary Islands on pre-alert for rain as Bank Holiday weekend begins
Five Canary Islands are under a government pre-alert for rain as the Bank Holiday weekend begins, with forecasters warning of locally heavy showers an...
Endur­heimti til­ganginn í erfiðu bataferli - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Endur­heimti til­ganginn í erfiðu bataferli - Vísir
Margrét Bjarnadóttir er fædd árið 1981, býr í Vesturbænum og er listamaður í orðsins fyllstu merkingu. Sköpunargleði hennar nær langt út fyrir afmarka...
Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný - Vísir

Óttar Guðmundsson skrifar: Þjóðarvakning
📅 10.10.2026 👁️ 4
Óttar Guðmundsson skrifar: Þjóðarvakning
Mynd Jónas Hallgrímsson er óumdeilt þjóðskáld Íslendinga.
Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mæður í fæðingarorlofi upplifa sig oftar einmana en áður
Einmanaleiki hefur aukist undanfarna áratugi. Hann hefur áhrif á fólk á öllum aldri og alls staðar í samfélaginu.Að jafnaði upplifa 36% þjóðarinnar si...
Réttindalaus ökumaður ók á hjól með þremur börnum og flúði – VÍS þarf að bæta tjón stúlku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Réttindalaus ökumaður ók á hjól með þremur börnum og flúði – VÍS þarf að bæta tjón stúlku
Landsréttur hefur staðfest fulla og ótakmarkaða bótaskyldu VÍS trygginga vegna líkamstjóns 13 ára stúlku sem var farþegi á breyttu léttbifhjóli þegar ...
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
📅 10.10.2026 👁️ 4
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna
Líkindareikningur lausgyrtra dómsdagsspámanna Rom­an Yampolskiy met­ur lík­urn­ar á að gervi­greind út­rými mann­kyn­inu 99,999999 pró­sent. Sif Sig­m...
Mikill viðbúnaður yfirvalda vegna fyrirhugaðra mótmæla
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mikill viðbúnaður yfirvalda vegna fyrirhugaðra mótmæla
Indverska kakkalakkahreyfingin Janata hefur boðað til fjöldamótmæla í Delhi, höfuðborg Indlands, í dag til að krefjast endurbóta á kosningum og afsagn...
What's On across the Canary Islands this Bank Holiday weekend
📅 10.10.2026 👁️ 4
What's On across the Canary Islands this Bank Holiday weekend
The Canary Islands are preparing for a busy Bank Holiday weekend, with concerts, festivals, traditional celebrations, sporting competitions and family...
Frétta­tía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Public executions in the US stopped nearly a century ago - why are they resuming now?
📅 10.10.2026 👁️ 3
Public executions in the US stopped nearly a century ago - why are they resuming now?
The Pentagon says the execution of Fort Hood shooter Nidal Hasan will be livestreamed, but experts suggest officials are reading the country wrong.
What happens when you grow up not knowing your family medical history?
📅 10.10.2026 👁️ 3
What happens when you grow up not knowing your family medical history?
People who have been adopted or are in care sometimes struggle to access family medical history which could be crucial to their own health.
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
📅 10.10.2026 👁️ 4
Queen reflects on reading 'forbidden' Lady Chatterley's Lover under the pillow
In BBC documentary The Book That Changed My Life, the Queen speaks about memorable moments in her own reading.
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
📅 10.10.2026 👁️ 4
Nord Stream trial: How German police followed the evidence - to Ukraine
After four years, a Ukrainian man is set to stand trial in Hamburg accused of sabotaging the Nord Stream pipelines.
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lýsa yfir neyðarástandi í þremur ríkjum vegna fellibyls
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Flórída, Alabama og Georgíu í Bandaríkjunum vegna fellibylsins Isaias sem nú gengur yfir. Veðurfræðingar vara vi...