Nýr varaformaður Samfylkingarinnar verður kjörinn á flokkstjórnarfundi sem haldinn er í Sandgerði í dag. Guðmundur Árni Stefánsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður er sá eini sem hefur boðið sig fram en framboðsfrestur rennur út klukkan tvö. Formaður flokksins, Kristrún Frostadóttir, flytur ræðu og ráðherrar flokksins fara yfir stöðuna í hálfleik og áherslur á seinni hluta kjörtímabilsins.