Hesthús og græn tún blasa við á fréttamyndum af framkvæmdum sem voru að hefjast í Kópavogi um aldamótin. Á Reykjanesbraut má sjá tvær akreinar en ekki fjórar eins og í dag og Smáratorg er helsta kennileitið sem gefur vísbendingu um hvað er að fara að rísa þarna.
Í dag er eins og Smáralind hafi alltaf verið þarna en þetta voru heilmiklar framkvæmdir á sínum tíma eins og Finnur Beck, sem þá var fréttamaður Sjónvarps, greinir frá í fréttinni hér fyrir neðan.
Vinnubúðir voru reistar á lóðinni fyrir verkamenn sem unnu að byggingu Smáralindar, svefnskáli sem áður var á Sultartanga fyrir verkamenn sem komu erlendis frá. Þar var aðstaða fyrir um 40 manns.
Íslendingar þekktir í verslunum í Bretlandi
Á meðal verslana sem opnaðar voru í Smáralind var Debenhams. Hún var á tveimur hæðum þar sem verslunin H&M er nú. Í viðtali við G. Pétur Matthíasson, sem þá var fréttamaður Sjónvarps, segir fulltrúi keðjunnar að þar á bæ hafi menn kannast við Íslendinga sem keyptu tvö- eða þrefalt meira en aðrir í verslunum Debenhams, bæði í Lundúnum og á norðanverðu Englandi.
Hátíðahöld fyrstu fimm dagana
Smáralind var formlega opnuð viðskiptavinum klukkan 10.10 þann 10. október 2001. Fyrr um morguninn var opnunarathöfn þar sem leikin var klassísk tónlist, Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra flutti ávarp og óskaði þjóðinni til hamingju með nýja verslunarmiðstöð og Páll Sigurjónsson, þáverandi forstjóri Ístaks, skilaði verkinu formlega af sér til Hannesar Smárasonar sem þá var stjórnarformaður Smáralindar. Tvö börn úr Kópavogi fengu þann heiður að opna verslunarmiðstöðina; þau Smári og Linda.
Rakel Þorbergsdóttir. fréttamaður og síðar fréttastjóri RÚV, fjallaði um opnunina í sjónvarpsfréttum og hér fyrir neðan má horfa á fréttina.
Smáralind er enn stærsta verslunarmiðstöð landsins, rúmlega 60 þúsund fermetrar, og þangað sækir fjöldi fólks verslun og þjónustu á degi hverjum. Fyrstu fimm dagana sem Smáralind var opin lögðu 256.739 manns leið sína þangað, samkvæmt sjálfvirkum talningum í verslunarmiðstöðinni.