Íslensk fyrirtæki kaupa endurnýttan tölvubúnað í mun meira mæli en áður. Á þessu ári hafa nær 25% allra tölva sem seldar hafa verið í netverslun OK verið endurnýttar HP-tölvur.eins og kemur fram í tilkynningu frá OK.Guðmundur Ómarsson, vefverslunarstjóri OK, segir að fyrir fáeinum árum hefði slíkt hlutfall þótt óhugsandi. Endurnýttur búnaður hafi lengi verið álitinn neyðarúrræði, en nú séu fyrirtæki farin að velja hann af ásettu ráði.
Endurnýttar tölvur nær fjórðungur af tölvusölu hjá OK