Í umfjöllun bandarísku fréttastöðvarinnar CBS kemur fram að Isaias gangi nú enn yfir suðausturhluta Bandaríkjanna en að hann hafi nú verið lækkaður um tign og sé nú flokkaður sem hitabeltislægð af bandarísku veðurstofunni. Hundruð þúsunda heimila í Flórída, Alabama og í Georgíu eru án rafmagns og hefur verið lýst yfir neyðarástandi í ríkjunum þremur.
Í Flórída ná rýmingarnar meðal annars til strandsamfélaga sem eru beint í vegi óveðursins. Rick Scott, öldungadeildarþingmaður Flórída, hvatti íbúa á tilgreindum svæðum til að yfirgefa þau sem fyrst og varaði við í færslu á samfélagsmiðlum: „BÍÐIÐ EKKI! Farið STRAX!“
Fram kemur að mikið óveður sé einnig í Mexíkó og Suður-Kaliforníu. Veðurfyrirbrigðið El Niño hafi tafið komu fyrsta fellibylsins á Atlantshafi og stuðlað að frekara óveðri yfir Kyrrahafi og þar með í Kaliforníu.