Landhelgisgæslan hefur fjórar þyrlur en að sögn Ásgeirs Erlendssonar sem Morgunblaðið ræddi við er ein þeirra alla jafna í langtímaviðhaldi. Almennt eigi tvær þyrlur að vera til taks en lítinn hluta ársins sé aðeins ein þyrla flotans tiltæk.
Í vikunni kom svo bilun upp í þessari einu þyrlu og var því engin þyrla aðgengileg. Samkvæmt því er Ásgeir segir var brugðist við um leið og þyrlan orðin flughæf nokkrum klukkustundum síðar.
Morgunblaðið hefur eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að Landhelgisgæslan hafi gripið til ráðstafana til að lágmarka áhættu þegar tvær þyrlur eru til taks, svo sem með því að fjölga flugvirkjum og breyta vaktafyrirkomulagi til að lágmarka tíma sem fari í að leysa óvæntar bilanir.
Hún segir óskandi að Landhelgisgæslan hefði fjórar þyrlur í flotanum en það myndi kosta sitt.