Þá var haldið upp á fjörutíu ára afmæli sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar sem áður hét Stöð 2.
Sindri var ánægður með sófann sem boðið var upp á þar sem hann náði með lappirnar í gólfið, eitthvað sem hann lendir ekki alltaf í. Vala Matt hefur í raun verið á Stöð 2 og seinna Sýn frá upphafi.
„Gleði og gaman eru búin að vera rauði þráðurinn alveg frá því að við byrjuðum,“ segir Vala.
Árið 1986 þótti það ekki til siðs að hlæja í sjónvarpi.
„Enda gerðum við svo margt sem RÚV hafði aldrei gert og við byltum í rauninni sjónvarpslandslaginu á Íslandi. Svo þótti það heldur ekki til siðs að halda á myndavélinni. Mér var sagt að maður ætti að setja myndavélina á þrífót og taka síðan viðtalið, annars væri þetta eins og þú værir að njósna um fólk. Mín viðbrögð voru þá bara, fokk jú,“ segir Vala og uppskar mikinn hlátur í salnum en hér að neðan má sjá spjall Björns við þetta skemmtilega fólk.
Hér að neðan má einnig sjá þáttinn í heild sinni.