Það er gott að eiga glæsileg varðskip. En þau eru lítil huggun fyrir alvarlega slasaðan eða bráðveikan einstakling úti á landi ef engin björgunarþyrla er tiltæk þegar mest á reynir.Íslensk stjórnvöld hafa um árabil varið milljörðum króna í tækjakost Landhelgisgæslunnar. Á sama tíma hefur stofnunin glímt við rekstrarfjárskort sem takmarkað hefur úthald varðskipanna. Þyrluflotinn er heldur ekki stærri en svo að viðhald og bilanir geta haft veruleg áhrif á björgunargetuna.
Vilhelm Jónsson skrifar: Þegar mannslíf bíða eftir björgun – en milljarðarnir liggja við bryggju