Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Þessari spurningu verður reynt að svara víða um land í dag.
Tölum samtal er sameiginlegt verkefni sem byggir á þeirri einföldu hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.
Ungt fólk leiðir samtölin og öllum kynslóðum er boðið að taka þátt.
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Samtal varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins.
Samtölin verða milli klukkan 14 og 17 í dag og má fylgjast með í beinu streymi í spilaranum hér að ofan.