Eldur kviknaði í áltökubíl í kerskála eitt í álverinu í Straumsvík laust fyrir hádegi. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur sent þrjá bíla á vettvang.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kviknaði í áltökubíl sem stóð í ljósum logum. Svartan reyk liggur frá álverinu.
Þórdís Arnljótsdóttir fréttamaður er á vettvangi. Hún segir að kolsvartan reyk hafi fyrst lagt frá þakinu en nú sé hann orðinn hvítur.
Fólk sem er inni við vinnu er ekki í hættu.
Eldurinn staðbundinn
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir eldinn staðbundinn í farartækinu og því ekki hætta á að hann breiðist út.
Hann segir þó nokkuð snúið að slökkva eld inni í álveri. Vegna rafmagns í skálanum er notast við duft í stað vatns. „Það er vont að komast að þessu en það er vinna í gangi,“ segir hann.
Um 15 slökkviliðsmenn eru í Straumsvík við aðgerðir. Lárus veit ekki til þess að slys hafi orðið á fólki.
Að sögn Bjarna Más Gylfasonar, upplýsingafulltrúa Straumsvíkur, er áltökubíll farartæki sem flytur fljótandi málm úr kerskála.
„Það er unnið eftir okkar verkferlum þegar svona atvik kemur upp,“ segir hann.
Bjarni segir svæðið þar sem eldurinn logar vera mannlaust. Engin slys hafa orðið á fólki. „Það er stjórn á aðstæðum,“ segir hann.
Uppfært klukkan 14:15: Slökkvistarf gekk greiðlega og er lokið.