Franz Gunnarsson, gítarleikari í hljómsveitum eins og Ensími og Dr. Spock, hefur reglulega þurft að hugsa aðeins út fyrir kassann á sínum tónlistarferli, ekki síst varðandi kynningarmál. Þegar hann og félagar hans í Quicksand Jesus voru að gefa út plötu á tíunda áratugnum áttu þeir ekki pening í auglýsingar. Lausnin var einföld: fá trukk, setja hljóðkerfi í hann og spila fyrir fólkið sem var nýkomið út af skemmtistöðunum í miðbæ Reykjavíkur.
„Þú ert ekkert minna merkilegur eða meira merkilegur heldur en Kurt Cobain“