Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir hagsmuni Íslands á róstusömum tímum tryggða með þéttri samvinnu við öll bandalagsríki og vinaþjóðir Íslands.
„Þó að við virðum niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að hefja ekki aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið þá lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu eða gröfum undan samningnum um Evrópska efnahagssvæðið,“ sagði hún í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Suðurnesjabæ í dag.
Hún segir þjóðaratkvæðagreiðsluna ekki hafa tekið afstöðu um það. „Þvert á móti er það stefna Samfylkingar og ríkisstjórnar að við stöndum okkur nú í stykkinu og styrkjum EES-samninginn enn frekar í sessi.“
Kristrún segir að treysta eigi sambandið við bæði Bandaríkin og Kanada auk næstu nágranna Íslands – Færeyjar og Grænland.
Þakkar Guðmundi Árna
Kristrún þakkaði í ræðunni fráfarandi varaformanni Samfylkingarinnar, Guðmundi Árna Stefánssyni.
„Þú hefur verið klettur við hlið mér í forystu Samfylkingar á alveg mögnuðum tíma í sögu flokksins. Það munaði oft um manninn með reynsluna, get ég sagt ykkur, og á ögurstundu höfum við alltaf getað treyst á þig.“
Guðmundur Árni tilkynnti í maí að hann hygðist stíga til hliðar sem varaformaður og hætta í pólitík.
Nýr varaformaður verður kjörinn á fundinum. Hann situr út kjörtímabil Guðmundar Árna. Einn er í framboði – Guðmundur Ari Sigurjónsson þingmaður.