Aníta greinir frá málinu í einlægri færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. Hún og Hafþór eignuðust dóttur í nóvember 2024 en fyrir átti Aníta eina dóttur. Parið hefur unnið náið saman í kvikmyndageiranum og búa þau saman í vesturbæ Reykjavíkur.
„Þakklæti ofan á allt heimsins þakkæti. Lítil sál hreiðraði um sig og ætlar að koma í mömmu og pabbafang í mars,“ skrifar Aníta. „Eftir að hafa farið í glasafrjóvgun með Lúnu okkar datt okkur ekki í hug að þetta væri mikill möguleiki. Hjartað er fullt.“
Parið tók á móti Völu Matt í Íslandi í dag í mars 2025.