Óprúttnir þjófar stálu eðalvínum sem talið er fimm milljóna evra, jafnvirði um 687 milljóna króna, virði úr stærsta vöruhúsi hinnar nafntoguðu Marchesi Antinori-víngerðar í Toskana á Mið-Ítalíu. Lagerinn beið útflutnings.
AFP hefur þetta eftir talsmanni fyrirtækisins, sem krefst nafnleyndar. Hann kveðst ekki vita um jafnumfangsmikið rán á Ítalíu. Ránsfengurinn var þrjár rauðvínstegundir, Tignanello, Slolaia og Guado al Tasso, sem kosta milli 16 og rúmlega 40 þúsund krónur flaskan, eftir árgöngum.
Talsmaðurinn segir vínin einhver þau vinsælustu sem Marchesi Antinori framleiðir og ekki síður eftirsótt meðal safnara.
Mat fyrirtækisins er að fimm til sex menn með tvo stóra sendibíla hafi framið ránið. Þeir aftengdu viðvörunarkerfi fyrir síðustu helgi og gátu þannig athafnað sig óáreittir.
Þjófnaðurinn kom ekki í ljós fyrr en á mánudagsmorgun þegar starfsfólk mætti í vöruhúsið. Í síðasta mánuði var nærri þrjú þúsund plöskum af Barolo-víni stolið í Piemonte-héraði að verðmæti nokkur hundruð þúsund evra.