Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.
Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í stafrænni miðlun, og Georg Páll Skúlason, formaður stéttarfélagsins GRAFÍU, eru þeir einu sem hafa tilkynnt framboð til embættis forseta Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn A. Hermannsson lætur af störfum á aðalþingi ASÍ sem hefst á miðvikudaginn.
Hafnar því að vera fulltrúi VR
Deilur innan verkalýðshreyfingarinnar hafa verið áberandi í umræðunni að undanförnu.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sagði í dag að hún teldi að Halla Gunnarsdóttir formaður VR ætlaði að reyna að sölsa undir sig ASÍ á aðalþinginu í næstu viku.
„Hún [Halla] ætlar að reyna að komast upp með að fá þing ASÍ til að samþykkja í næstu viku að varaforsetum ASÍ verði fækkað niður í einn, til að hún geti verið án afskipta frá fulltrúum verkafólks þegar hennar frambjóðandi er orðinn forseti ASÍ og hún eini varaforsetinn,“ skrifaði hún á Facebook fyrr í dag.
Arnaldur hafnar því alfarið að hann sé fulltrúi VR í framboðinu og sögusögnum um að hann hafi verið handvalinn af formanni félagsins.
„Ég verð að vísa slíkum ummælum til föðurhúsanna,“ segir hann.
Arnaldur segir að sér þyki fyndið að fólk geri að því skóna að valdamiklir formenn standi að baki honum og Georg Páli.
„Það sér það hver sem er að þetta verkefni sem er fram undan og liggur fyrir forseta er ekki einfalt mál og það að maður fari þarna inn sem einhvern vinargreiða þetta nær engri átt.“
Georg Páll segist ekki hafa boðið sig fram til að brýna fylkingar. Hann bendir á að hann komi úr fagfélögunum sem eru í slagtogi með VR í núverandi kjaralotu.
Georg segir að í áranna rás hafi oft verið skorað á hann.
„Núna fannst mér vera ástæða til þess að láta verða af því. [...] Hvatning félaga minna vítt og breitt úr verkalýðshreyfingunni er það veganesti sem ég byggi þessa ákvörðun á. Það er alls ekki til að brýna einhverjar fylkingar.“