Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.
Í tilkynningu Félagsins Íslands-Palestínu og BDS Íslands fyrir kröfugönguna var þess krafist að íslensk stjórnvöld létu verkin tala: aðgerðir, ekki yfirlýsingar.
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtökubyggðum Ísraela á hernumdum svæðum Palestínu. Ekkert hefur hins vegar komið fram hvaða aðgerða Ísland hyggst grípa til til að fylgja yfirlýsingunni eftir,“ segir í tilkynningu um kröfugönguna.
Þar segir jafnframt að stuðningur almennings við réttindi Palestínumanna sé í sögulegum hæðum.
„Þrátt fyrir það hefur aðgerðaleysi stjórnmálafólks og blekkingin um vopnahlé gert það að verkum að hörmungarástand viðhelst á Gaza og Vesturbakkanum án raunverulegra afskipta alþjóðasamfélagsins.“